Innlent

Ekki refsað fyrir að saka yfirmann sinn um endurteknar nauðganir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Konan kærði manninn til lögreglunnar í Reykjavík í janúar 2011 fyrir að hafa nauðgað sér þrisvar á um það bil einum mánuði.
Konan kærði manninn til lögreglunnar í Reykjavík í janúar 2011 fyrir að hafa nauðgað sér þrisvar á um það bil einum mánuði. Vísir/Getty
Kona var á dögunum sýknuð í Héraðsdómi Reykjavíkur af ásökunum um að hafa sakað fyrrverandi yfirmann sinn um nauðgun í þrígang og beitt hana ítrekað kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi. Fór maðurinn fram á fimm milljónir króna í miskabætur en fékk ekki.

Konan kærði manninn til lögreglunnar í Reykjavík í janúar 2011 fyrir að hafa nauðgað sér þrisvar á tímabilinu desember 2010 til janúar 2011. Maðurinn var eigandi og framkvæmdastjóri veitingastaðar í Reykjavík. Nauðganirnar áttu að hafa átt sér stað á veitingastaðnum.

Húsleit var gerð hjá manninum mánuði síðar auk þess sem hann var handtekinn. Hald var lagt á tölvur en skoða átti hvort þar væri að finna klámefni. Ekkert slíkt fannst og var manninum sleppt að lokinni yfirheyrslu sama dag. Eftir að upptökur úr öryggisvélum staðarins voru skoðaðar komst lögregla að þeirri niðurstöðu að ekki væri grundvöllur fyrir frekari rannsókn. Henni hefði því verið hætt.

Lögreglan hætti bæði rannsókn á kæru konunnar vegna nauðgunar og síðar kæru mannsins vegna ærumeiðinga.Mynd/Lögreglan
Lögregla hætti tvisvar rannsókn

Í desember 2011 kærði svo eigandinn konuna og eiginmann hennar til lögreglu fyrir að hafa sakað sig um nauðgun og sömuleiðis fyrir ærumeiðingar. Var kærunni upphaflega vísað frá í apríl 2012 þar sem mat lögreglu var að ekki væri tilefni til rannsóknar. Sú ákvörðun var kærð til ríkissaksóknara sem felldi hana úr gildi. Var lögreglustjóri látinn taka skýrslur af aðilum málsins.

Maðurinn áréttaði kæru sína við skýrslutöku 14. september. Lagði hann til skýrslu sem tekin hafði verið af manni sem hafði sagt lögreglu að eiginmaður konunnar hefði ætlað að kúga fimm milljónir króna út úr honum. Konan neitaði sök og stóð við framburð sinn. Maðurinn hefði nauðgað henni í þrígang á skrifstofu hans á veitingastaðnum. Enginn hefði haft áhrif á framburðinn. Hætti lögregla í kjölfarið rannsókn málsins en maðurinn kærði þá ákvörðun til ríkissaksóknara. Í desember 2012 staðfesti ríkissaksóknari ákvörðun lögreglustjórans og höfðaði maðurinn því einkamál.

Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Var góður vinur eiginmannsins

Maðurinn byggði kröfu sína á því að hjónin hefðu sett á svið atburðarás í þeim tilgangi að valda honum fjárhagslegu og persónulegu tjóni. Um ærumeiðandi aðdróttanir hafi verið að ræða í garð mannsins sem hafi þurft að sitja undir ásökunum um brot sem geta varðað allt að sextán ára fangelsisvist.

Konan byggði sýknukröfu sína á því að hafa sagt lögreglunni sannleikann við skýrslutöku. Erfitt hafi verið að segja frá atburðunum og kæra til lögreglu. Spilaði þar stóran þátt að eiginmaður hennar og eigandi veitingastaðarins voru góðir vinir. Hún hafi því ekki viljað særa eiginmann sinn. Konan hafi farið í sálfræðiviðtöl á geðdeild vegna einkenna um áfallastreituröskun. Þá hafi hún verið í alvarlegri sjálfsvígshættu.

Upptaka mannsins var ekki tekin gild sem sönnunargagn.Vísir/Getty
Upptaka lögð fram sem sönnunargagn

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að dæma konuna til refsingar þar sem sex mánaða málshöfðunarfrestur var liðinn þegar einkamálið var höfðað 20. mars 2013. Því var þeim lið vísað frá dómi.

Konan og maðurinn voru ein til frásagnar um hvað gerðist á skrifstofu þess síðarnefnda. Þar standi því orð gegn orði. Konan hafi bent á að maðurinn hafi skipað sér að haga sér eðlilega í vinnunni svo ekki vöknuðu grunsemdir hjá öðru starfsfólki. Fyrir vikið væri ekki mark takandi á myndbandsupptökum.

Þá lagði maðurinn fram hljóðritun af samtali sínu við konuna í bíl hans þar sem kom fram staðfesting á að hún hefði ranglega sakað manninn um nauðgun. Dómurinn sagði hins vegar óumdeilt að upptakan var gerð án vitneskju konunnar. Upptakan var afhent lögreglu en konan breytti í engu framburði sínum þrátt fyrir að heyra innihald hennar.

Þá bar vinur mannsins vitni fyrir dómi og staðfesti að konan hefði sagt sér oftar en einu sinni frá því að ásakanirnar væru upplognar. Þar sem vitnið upplýsti við upphaf skýrslutöku um að hún væri vinur stefnanda og frekari gögn gátu ekki stutt þann framburð taldi dómurinn að ekki væri um næga sönnun að ræða.

Eigandinn þurfti því að greiða 800 þúsund krónur í málskostnað. Konan þarf ekki að greiða krónu þar sem hún fékk gjafsókn í málinu.

Dóminn í heild sinni má sjá hér.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×