Innlent

Ekki óvanalegt að selja tveggja ára gamalt lambakjöt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
MYND/AÐSEND
Íslenskum kjötunnanda brá í brú þegar hann rakst á pakka af lambafille með fiturönd í verslun Bónus á höfuðborgarsvæðinu í dag.

Kjötið, sem er frá kjötafurðarstöð Kaupfélags Skagfirðinga, er af lambi slátruðu á haustmánuðum ársins 2012 og er því næstum tveggja ára gamalt.

Neytandinn hafði samband við Vísi og vildi grennslast fyrir um hvort eðlilegt væri að selja jafn gamla kjötafurð og þessa í verslunum landsins. „Matreiðslumeistarinn sem ég sýndi þetta sagðist ekki hafa trúað sínum augum og sagðist aldrei vilja sörvera þetta,“ bætti forvitni neytandinn við.

Leifur Eiríksson, gæðastjóri kjötafurðarstöðvar Kaupfélags Skagfirðinga, segir að ekki sé óvanalegt að selja jafn gamalt kjöt og þetta en þó einungis ef vel er hlúð að geymsluskilyrðum þess.

„Lambafilleinu okkar er rækilega vakúmpakkað og geymt í um 24 til 25 gráðu frosti. Filman okkar er þykk og mikil þannig að enginn ætti að þurfa að kvarta undan gæðum vörunnar. Við skulum bara orða það þannig að ef við treystum þessu ekki þá værum við ekki að selja þetta,“ segir Leifur og bætti við að þeir hjá Kaupfélaginu væru þó ekki hrifnir af því að vera með jafn gamla vöru í dreifingu.

Ástæðan fyrir því væri þó einfaldlega offramboð á þessari tilteknu vöru. Neyslumynstur Íslendinga hafi breyst mikið á undanförnum árum og fjölgun ferðamanna, sem þekkja betur til svína- og nautakjöts, hafi einnig sett strik í reikninginn.

„Það óskar sér ekkert fyrirtæki að vera með fullan lager af vöru sem selst ekki. Það fylgir því bara kostnaður sem ratar út í verðið á öðrum afurðum,“ segir Leifur.

Aðspurður um það hvað ráði því að ekkert seljist af einni kjötafurð en að sérstaklega þurfi að flytja inn birgðir af öðrum, til að mynda nautakjöti frá Danmörku, segir Leifur það fyrst og fremst tilkomið vegna fyrrgreindra aðstæðna, sem og framleiðslutíma kjötafurða. Erfitt sé að bregðast við sveiflum í eftirspurn á nautakjöti enda taki um 30 mánuði að koma því í verslanir. Ekki bætir aukin mjólkurneysla Íslendinga í tengslum við vinsæla megrunarkúra á borð við LKL úr skák – færri nautgripir fari fyrir vikið til slátrunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×