Viðskipti innlent

Ekki nóg að vera betri en önnur lönd

Sæunn Gísladóttir skrifar
Ragnhildur Steinunn og Edda koma úr ólíkum geirum og áttum að bókinni og segja gaman að sameina krafta sína með henni.
Ragnhildur Steinunn og Edda koma úr ólíkum geirum og áttum að bókinni og segja gaman að sameina krafta sína með henni. vísir/ernir
„Ísland trónir efst á listum um jafnrétti og hefur gert það síðustu sex árin, en við erum að reyna að átta okkur á hver sé raunveruleg staða jafnréttismála hér á landi, hvernig fólk í mismunandi geirum sé að upplifa stöðuna,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, en þær Edda Hermannsdóttir hafa ritað viðtalsbók um jafnréttismál sem gefin verður út í byrjun næsta árs.

Bókin, Forystuþjóð, er gefin út í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, og hafa þær fengið stuðning frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu og velferðarráðuneytinu.

„Þetta eru yfir 30 sögur ólíks hóps úr mismunandi geirum,“ segir Ragnhildur Steinunn. „Við lögðum mikla áherslu á að fá fólk til að tjá sig um þetta mál sem hefur ekki verið að gera það áður og að fá karla inn í umræðuna líka.“

„Það sem er áhugavert við þetta er að fólk er mjög ósammála um hvaða leiðir eigi að fara til að ná jafnréttismarkmiðum. Okkur finnst umræðan búin að vera ansi einsleit, og sami hópurinn er svolítið búinn að vera að tala um þetta. Sumir viðmælendur eru mjög hlynntir kynjakvótum og jafnlaunavottun, á meðan aðrir eru algjörlega ósammála því,“ segir Edda.

„Við erum búnar að vinna þessa bók í yfir ár og það sem hún hefur gert fyrir okkur er það sem við vonum að hún geri á markaðnum, að hún hristi upp í hugmyndum okkar,“ segir Ragnhildur Steinunn.

„Við endurskilgreinum svolítið jafnréttisbaráttuna, og vonandi fer fólk að hugsa á annan hátt um brýnustu efnin,“ segir Edda.

„Ég held að það sé lína í bókinni að allir séu sammála um að við séum komin langt, þess vegna heitir hún Forystuþjóð. Hugmyndin að bókinni kviknaði í fyrra þegar við vorum að fagna 100 ára kosningaréttarafmæli kvenna, mikið hefur áunnist en mörg baráttumál eru eftir,“ segir Edda.

Ragnhildur Steinunn bendir á að þótt halli oftast á einn veg séu einnig ýmis jafnréttismál sem varða karla. „Fæðingarorlof feðra og feðrarétturinn eru ekki síður mál sem við eigum öll að berjast fyrir.“

„Ísland hefur allt til að vera forystuþjóð á sviði jafnréttis. Við höfum það rosalega gott lagalega, en við þurfum líka að átta okkur á því að ef ósanngirni ríkir, verður hún ekki minni með því að benda á aðrar þjóðir og segja þær hafa það verra. Við eigum ekki að sætta okkur við það. Við eigum að fara alla leið og vera forystuþjóð,“ segir hún.

Þær segjast hafa fundið mikinn meðbyr með bókinni, fjölmörg fyrirtæki hafa nú þegar keypt hana fyrir sína stjórnendahópa. Þær vilja skapa líflegar umræður þegar bókin kemur út og segja að mikil vitundarvakning sé nú í jafnréttismálum. „Það verða líklega tekin ákveðin skref í þessari byltingu í róttæka átt á næstunni,“ segir Edda. 

Fréttin birtist fyrst í Markaðnum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×