Innlent

Ekki næst í forystu Sjálfstæðisflokksins

Sveinn Arnarsson skrifar
Framsóknarmenn eru ósamstiga í afstöðu sinni gagnvart því hvort kosið verði í haust eða næsta vor.
Framsóknarmenn eru ósamstiga í afstöðu sinni gagnvart því hvort kosið verði í haust eða næsta vor. fréttablaðið/Ernir
Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra segir nær öruggt að kosið verði í haust þrátt fyrir ummæli formanns flokksins, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem opnað hefur rækilega á það að kosið verði næsta vor. Á meðan næst ekki í forystu Sjálfstæðisflokksins.

Forsætisráðherra sér það ekki fyrir sér að kosningum verði frestað til vorsins. Það þyrfti þá nokkuð mikið að ganga á í þinginu ef ekki tekst að kjósa í haust. „Ég sé ekki að það geti gerst nema að því gefnu að það verði allt sett hér í bál og brand, sem ég hef enga trú á,“ segir Sigurður Ingi.

Þegar Sigurður Ingi er spurður út í orð formanns flokksins og hugmyndir hans um að skipta sér af dagsetningu kosninga er svar hans skorinort: „Þingrofsheimildin er í höndum forsætisráðherra.“

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði á Facebook-síðu sinni í gær að ummæli Sigmundar um að ekki liggi á að kjósa í haust séu til þess eins fallin að „koma í veg fyrir þá mikilvægu vinnu sem framundan er í þinginu og setja þar allt í upplausn“. Slíkt myndi sprengja ríkisstjórnina og þar með færu mörg mál í súginn. Höskuldur segist líta svo á að ekki komi annað til greina en að standa við kosningar í haust.

Fréttablaðið hefur ítrekað reynt að ná tali af formanni og varaformanni Sjálfstæðisflokksins vegna málsins síðustu daga en án árangurs.

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×