Innlent

Ekki nægjanlegt að hækka barnabætur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sá munur sem er á aðstæðum foreldra sem eiga lögheimili með barni og umgengnisforeldra myndi aukast enn meira ef barnabætur yrðu notaðar sem mótvægisaðgerð.
Sá munur sem er á aðstæðum foreldra sem eiga lögheimili með barni og umgengnisforeldra myndi aukast enn meira ef barnabætur yrðu notaðar sem mótvægisaðgerð. fréttablaðið/Vilhelm
Hækkun barnabóta er ekki nægjanleg mótvægisaðgerð við fimm prósentustiga hækkun neðra þreps tekjuskattsins, að mati Guðmundar Steingrímssonar, formanns Bjartrar framtíðar. Hann leggur til hækkun persónuafsláttar í staðinn.

Fyrstu umræðu um tekjuöflunarfrumvarp ríkisstjórnarinnar og virðisaukaskattsfrumvarpið er lokið á Alþingi. Nú mun umræðan fara fram í efnahags- og viðskiptanefnd, þar sem Guðmundur situr. Hann telur að það yrði mun sanngjarnara, einkum fyrir barnlaust fólk og umgengnisforeldra, að hækka persónuafslátt sem mótvægisaðgerð við hækkun neðra virðisaukaskattsþrepsins. Ekkert sé gert til að mæta þessum hópi.

Guðmundur Steingrímsson
„Þetta eru meðlagsgreiðendur margir og ég held að þeir hafi það margir mjög skítt. Þeir eru skráðir núna sem einstæðingar en þeir eru uppalendur barna og foreldrar. Barnabætur ná ekkert til þessa hóps og við erum að nota tækifærið og vekja máls á þessu fyrst barnabætur eru eina mótvægisaðgerðin við hækkun á matarskatti,“ segir hann.

Að sögn Guðmundar gagnast persónuafsláttur öllum sem hafi úr litlu að spila. „Sú leið nær líka til umgengnisforeldra, hún nær til námsmanna og hún nær til aldraðra og örorkubótaþega. Mér finnst það sanngjarnara ef hún nær til allra hópa sem mótvægisaðgerð við aðgerð sem kemur niður á öllum hópum.“

Karl Garðarsson
Karl Garðarsson, þingmaður Framsóknar, segir hækkun á neðra þrepi ekki mega fara í tólf prósent.

„Ég vil ekki nefna tölu núna en ég tel að hún þyrfti að vera lægri auk þess sem mótvægisaðgerðirnar þyrftu að ná til fleiri hópa. Það er ekki nóg að þær nái bara til barnafólks. Það eru svo margir aðrir stórir hópar sem yrðu skildir út undan,“ segir hann.

Karl segir að sú hugmynd að hækka persónuafslátt hljómi ekki illa, en vandamálið sé að þá kæmu mótvægisaðgerðir líka til móts við þá sem eru með mestu tekjurnar og það sé kannski fullmikið. „Þó mér finnist alveg sjálfsagt að skoða það,“ segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×