Innlent

Ekki lausn að útskúfa kynferðisbrotamönnum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands.
Helgi Gunnlaugsson er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Vísir/Valli
Mikilvægt er að kynferðisbrotamenn, sem og aðrir brotamenn, eigi möguleika á því að stíga út í samfélagið á nýjan leik eftir afplánun refsingar. Útskúfun geti leitt til þess að þeir leiðist aftur til afbrota. Framkvæmd uppreist æru undanfarin ár er þó ekki leiðin.

Þetta er mat Helga Gunnlaugssonar, prófessors í félagsfræði, sem ræddi refsingar í kynferðisbrotamálum sem og uppreist æru í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag.

Umræða um kynferðisbrotamenn og uppreist æru hefur farið hátt í samfélaginu undanfarna mánuði eftir að í ljós kom að dæmdum kynferðisbrotamönnum hafði verið veitt uppreist æra á grundvelli laga um slíkt.

Hávær gagnrýni hefur komið fram á þessi lög og framkvæmd þeirra. Hyggst Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um uppreist æru. Stefnt er að því að afnema alfarið heimildina til að veita uppreist æru.

Helgi tekur undir gagnrýnina á veitingu uppreist æru og segir að framkvæmd hennar innar stjórnsýslunnar sé vart boðleg.

„Mér sýnist að þetta ferli allt saman sem er einhvern veginn að koma upp á yfirborðið núna, þetta eru tugir mála á síðustu árum sem allt saman orkar mjög tvímælis. Þetta er ekki stjórnsýsla sem við viljum hafa,“ sagði Helgi.

Mikilvægt sé þó að binda þannig um hnútana að þeir afbrotamenn, kynferðisbrotamenn sem og aðrir, geti snúið aftur út í samfélagið eftir að refsing hefur afplánuð.

„Þessir brotamenn sem brjóta af sér, hvort sem það eru kynferðisbrot eða önnur brot, þeir verða að eiga sér einhverja undankomu,“ segir Helgi. Sé það ekki gert sé hætta á því að þeir brjóti af sér á nýjan leik.

„Við megum heldur ekki grípa til aðgerða af því tagi að þessir einstaklingar sem eru að brjóta af sér og koma aftur út í samfélagið, að þeir eigi sér ekki viðreisnar von. Þá erum við bara að plægja jarðveginn fyrir frekari brot, alveg örugglega biturð og að menn loki sig af og verði kannski bara baggi á þjóðinni í framtíðinni,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir

Undanþágan varð að meginreglu við uppreist æru

Dómsmálaráðherra segir engar tilraunir hafa verið gerðar til þöggunar í tengslum við upplýsingar varðandi framkvæmd laga um uppreist æru. Hins vegar hafi undanþágugrein í lögum orðið að reglu við uppreist æru og framkvæmdin því ekki að fullu eins og löggjafinn hafi ætlast til.

„Þöggunin er stærsta vopn gerandans“

Anna Signý Guðbjörnsdóttir segir að sér líði eins og dómur mannsins sem braut gegn henni hafi verið þurrkaður út en hann er fyrrum lögreglumaður sem fékk uppreist æru árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×