Innlent

Ekki í tísku að nota smokkinn þótt verð hafi lækkað

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
590 þúsund smokkar seldust árið 2014. Ódýrustu Durex-smokkarnir kosta 590 krónur í Bónus, eða 59 krónur stykkið.
590 þúsund smokkar seldust árið 2014. Ódýrustu Durex-smokkarnir kosta 590 krónur í Bónus, eða 59 krónur stykkið.
Þrátt fyrir að undanfarin tvö ár hafi orðið 3 prósenta aukning á smokkasölu hjá heildsölunni Halldóri Jónssyni, sem flytur inn Durex-smokka, segir Ásgeir Sveinsson, framkvæmdastjóri heildsölunnar, Ísland vera langt á eftir nágrannalöndunum.

„Á síðustu tveimur árum hefur orðið veruleg verðlækkun á smokkum. Virðisaukaskatturinn hefur lækkað og við höfum líka lækkað verðið. Við hefðum því viljað sjá aukna sölu. Smokkurinn er ódýrari hér á landi en á Norðurlöndunum, samt er hærra hlutfall þar sem kaupir smokkinn.“

Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir (tv) og Ásgeir Sveinsson.
Ásgeir tekur undir áhyggjur yfirlæknis á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans um að ungt fólk virðist nota smokkinn lítið. „Við höfum verið að hlera skólahjúkrunarfræðinga og fræðsluhópa sem við erum í samstarfi við. Það virðist ekki vera í tísku að nota smokkinn. Við ætlum að fara í herferð í haust, það veitir víst ekki af.“

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekkert átak fyrirhugað hjá Embætti landlæknis. „Við höfum ekki forsendur til að meta hvort ungt fólk sé hætt að nota smokkinn og það eru engar rannsóknir í farvatninu. Fjármagn og mannafli setur okkur mörk.“

Mörg ár eru síðan embættið hefur staðið fyrir formlegu smokkaátaki. „Það var síðast þegar HIV-faraldurinn reið yfir.“


Tengdar fréttir

Tuttugu greindir með sárasótt síðasta árið

Tuttugu samkynhneigðir karlmenn voru greindir með sárasótt síðasta vetur. Helmingslíkur eru á að ungt fólk sem er virkt í skyndikynnum fái klamydíu. Yfirlæknir kallar eftir smokkaátaki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×