Innlent

Ekki hvarflað að lögreglustjóranum að segja af sér

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri. Vísir/Stefán
„Ýmislegt hefur verið rætt og ritað um þetta mál að undanförnu, bæði réttmætt og annað beinlínis rangt. Ég hef lært mikið af þessu ferli en það hefur ekki hvarflað að mér að segja af mér embætti,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Lögreglustjórinn segist fegin að niðurstaða Persónuverndar liggi fyrir vegna athugunar hennar á greinargerð sem hún sendi Gísla Frey Valdórssyni, aðstoðarmanni Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, þáverandi innanríkisráðherra. Sigríður Björk var þá lögreglustjóri á Suðurnesjum.

Greinargerðin varðaði mál hælisleitandans Tony Omos og fleiri aðila. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að Sigríður Björk hefði brotið gegn lögum um persónuvernd og meðferð upplýsinga þegar hún lét Gísla Frey fá umrædda greinargerð.

Lögreglustjórinn sendi aðstoðarmanninum greinargerðina í tölvupósti daginn sem fréttir voru birtar byggðar á minnisblaði sem Gísli Freyr lak úr innanríkisráðuneytinu. Gísli Freyr var nokkrum mánuðum síðar dæmdur fyrir lekann sem hann viðurkenndi eftir að hafa fyrst neitað.

Sigríður Björk var færð til í starfi og ráðinn lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu eftir að Stefán Eiríksson hætti í því starfi. Umboðsmaður Alþingis hefur gagnrýnt samskipti Hönnu Birnu við Stefán harðlega í skýrslu sem birt var nýverið.

Staðan var ekki auglýst heldur skipaði Hanna Birna Sigríði sem nýjan lögreglustjóra. Hún gegnir þeirri stöðu í dag.

Í kjölfar þess að Persónuvernd skilaði niðurstöðu sinni vegna samskipta Sigríðar Bjarkar og Gísla Freys hefur fréttastofa 365 ítrekað reynt að ná tali af henni en án árangurs.


Tengdar fréttir

Fær ekki áminningu

Ólöf Nordal innanríkisráðherra ber traust til Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lögreglustjóra þrátt fyrir að hún hafi ekki haft heimild til miðlunar persónuupplýsinga. Sigríður verður ekki áminnt af ráðuneytinu og engin eftirmál verða.

Segir Sigríði engin lög hafa brotið

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og lögmaður er sammála túlkun lögreglustjórans á úrskurði Persónuverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×