Innlent

Ekki hættuleg mengun í læknum í Hafnarfirði

Hersir Aron Ólafsson skrifar
Lækurinn í Hafnarfirði.
Lækurinn í Hafnarfirði.
Ekki er talið að mengun sem fannst í læknum í Hafnarfirði á föstudag muni hafa teljandi áhrif á lífríki á svæðinu. Heilbrigðisfulltrúi segir líklegast um að ræða afgangsefni frá steypuvinnu í Setbergshverfi, en nokkur tími gæti liðið þar til lækurinn hreinsast alveg.

Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis bárust fregnir af því um hádegisbil á föstudag að nokkurt magn mengandi efna streymdi í lækinn og voru fulltrúar strax sendir á staðinn.

„Það uppgötvaðist að þetta var að leka í lækinn úr röri sem kemur frá Setbergshverfinu og virtist vera mikið magn. Það kom strax í ljós að þetta var ekki af olíuuppruna, hvorki eldsneyti né leysiefni, þvottaefni eða annað í þá veruna og þetta voru heldur ekki nein málningarefni,“ segir Páll Stefánsson, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Kópavogs- og Hafnarfjarðarsvæðis. Því hafi fljótt verið ljóst að lekinn væri ekki sérlega alvarlegur, ef svo má segja.

„Við fylgdumst vel með þessu, þetta dreifðist verulega um lækinn og fyllti alveg vatnsbolinn frá botni til yfirborðs og var mjög lengi að þynnast út, þó innstreymi væri fljótlega lokið,“ segir Páll.

Ekki hefur verið hægt að rekja nákvæman upprunastað mengunarefnanna, en Páll segir myndina þó nokkuð skýra.

„Þetta er að öllum líkindum annað hvort filt eða sement eða efni sem verður til við steypuvinnu eða hreinsun á húsgrunni á byggingarstað,“ segir Páll.

Hann segir um að ræða mjög fín, sviflæg efni og nokkurn tíma gæti tekið fyrir vatnið að hreinsast alveg. Hins vegar megi slá því föstu að ekki sé hætta á ferðum.

„Það var alveg ljóst að hvorki fuglalíf eða annað líf yrði fyrir miklu. Þetta hefur engin áhrif á fugla og á aðra hefur þetta óveruleg áhrif,“ segir Páll að lokum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×