Innlent

Ekki hægt að halda uppi bráðaþjónustu ef uppsagnir geislafræðinga standa

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Uppsagnir r ú mlega tuttugu geislafr æð inga  á   Landsp í talanum taka gildi 1. september n æ stkomandi.

Alls eru 64 st
öð ugildi geislafr æð inga  á   Landsp í talanum, ef a ð   uppsagnir  þ eirra ganga eftir ver ð ur ekki h æ gt a ð   sinna grunn þ j ó nustu  í   myndgreiningu  á   Landsp í talanum.

Ó skar Reykdalsson, framkv æ mdastj ó ri ranns ó knasvi ð s Landsp í talans, segir jafnvel ekki h æ gt a ð   halda uppi br áð a þ j ó nustu ef uppsagnir geislafr æð inga standa.  Katr í n Sigur ð ard ó ttir forma ð ur f é lags geislafr æð inga segir st öð una alvarlega.  Einn  þ ri ð ji e ð a n á l æ gt   þ v í   hefur sagt upp, r ú mlega  þ a ð ,  þ a ð   er n á tt ú rulega bara mj ö g alvarlegt m á l.  

Katrín segir vanda geislafræðinga djúpstæðari en hvað varðar launahækkanir.  Geislafræðingar vilja að auki ræða skipulag starfa og finnst að sér vegið í umræðunni. 

„Það hefur snert geislafræðinga djúpt sem starfa á Landspítala að heyra frá sínum næsta yfirmanni, forstjóra spítalans, landlækni og jafnvel ráðherra.“

Hún segir algjört virðingarleysi gagnvart stétt geislafræðinga, bæði innan stofnunar og  utan. Fólk upplifir að það njóti ekki nokkurrar virðingar. Hvort sem það er nú innan stofnunarinnar eða bara almennt.“

Ástandið var rætt á fundi stjórnanda Landspítalans í morgun. Þar kom fram að tæplega sjöþúsund myndgreiningum hefur verið frestað frá upphafi verkfalls og að erfitt sé   fólk til að vinna þær undanþágubeiðnir sem hafa fengist samþykktar vegna manneklu og álags.„Við erum búin að fresta yfir fimm hundruð skurðaðgerðum, en það eru bara þær sem bókstaflega hefur verið frestað og eru fyrir utan þær sem komast ekki á listann, sjö þúsund myndgreiningar hafa ekki verið gerðar, tugir þúsunda blóðrannsókna, sumar eru í frysti og liggja undir skemmdum, aðrar hafa ekki verið teknar. 3200 göngudeildar komum hefur verið frestað. Þetta er ekki heilbrigðisþjónusta sem er Íslendingum bjóðandi til lengdar.“

Páll  segist skilja þá þreytu sem upp er komin vegna langvarandi álags geislafræðinga. „Þetta er bara grafalvarleg staða og endurspeglar langvarandi þreytu, ekki síst geislafræðinga. Kjörunum ráðum við ekki,“ undirstrikar Páll og segist vona að batni kjörin ráði geislafræðingar sig aftur til vinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×