Innlent

Ekki hægt að fullyrða að kyn dómara skipti máli

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Tíu prósent af skipuðum dómurum við Hæstarétt eru konur.
Tíu prósent af skipuðum dómurum við Hæstarétt eru konur. vísir/gva
Ekki er hægt að fullyrða að kyn dómara skipti máli varðandi dómsniðurstöður í einstökum málum. Þetta var meðal annars niðurstaða Ingu Valgerðar Stefánsdóttur lögfræðings í meistararitgerð sem hún skrifaði í lögfræði við Háskóla Íslands.

Titill ritgerðarinnar var „Skiptir kyn máli við skipan dómara í Hæstarétt Íslands?“

„Mér fannst niðurstöðurnar áhugaverðar og tel að það sé mikilvægt að það eigi sér stað breyting hvað varðar kynjahlutföll við Hæstarétt,“ segir Inga Valgerður.

Inga Valgerður Stefánsdóttir
Inga skoðaði meðal annars dómsniðurstöður Hæstaréttar í kynferðisbrotamálum. 

„Ég skoðaði dóma þar sem dómarar skiluðu sératkvæði til að kanna hvort það skipti máli af hvaða kyni dómari er í kynferðisbrotamálum. Niðurstaðan er að það er erfitt að slá slíkri fullyrðingu fastri enda eru dómendur einstaklingar sem hafa ólíka reynslu og kunna að túlka lögin á ólíkan hátt hvort sem um er að ræða konu eða karl.“

Inga segir að það sé þó mikilvægt að jafna kynjahlutföll við æðsta dómstól landsins en aðeins tíu prósent af skipuðum dómurum við Hæstarétt eru konur. 

„Varðandi stjórnir fyrirtækja hefur oft verið vísað til þess að aukin fjölbreytni skili betri árangri og á það alveg eins við um dómstóla. Sterk ímynd Hæstaréttar út á við skiptir máli og það er líklegra að samsettur hópur dómenda af báðum kynjum, sem endurspeglar betur samfélagið, njóti trausts almennings fremur en einsleitur hópur karla,“ segir Inga og bætir við mikilvægi þess að konur séu ekki útilokaðar frá embættum fyrir það eitt að vera konur. 

Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor og leiðbeinandi Ingu, segir ritgerðina hafa verið vel unna og að megin áhersla hafi verið lögð á samspil jafnréttislaga og dómstólalaga. „Hún skoðaði lítið úrtak af dómum í kynferðisbrotamálum og af þeim er ekki hægt að fullyrða að niðurstaðan sé breytileg eftir kyni dómarans enda eru málin misjöfn. Það er þó heldur ekki hægt að útiloka að kyn skipti máli.“

Þessi frétt birtist upphaflega í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×