Viðskipti innlent

Ekki hægt að „hoppa“ með Air Iceland Connect eftir 31. maí

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Vél Air Iceland Connect, sem áður hét Flugfélag Íslands, á Reykjavíkurflugvelli.
Vél Air Iceland Connect, sem áður hét Flugfélag Íslands, á Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Anton
Flugfélagið Air Iceland Connect hyggst hætta að bjóða upp á svokölluð hoppfargjöld, ódýran valkost í innanlandsflugi fyrir unga farþega. Nokkurrar óánægju gætir meðal ungs fólks, sérstaklega á landsbyggðinni, með ákvörðunina. Framkvæmdastjóri flugfélagsins segir breytingu hafa orðið á framboði fargjalda þannig að hoppið sé ekki lengur ódýrast. Því verði ungu fólki boðin önnur úrræði.

Á heimasíðu Air Iceland Connect, sem fer með nær allt innanlandsflug hér á landi, kemur fram að ekki verði í boði að hoppa eftir 31. maí næstkomandi. Með hoppfargjöldum geta farþegar á aldrinum 12-25 ára skráð sig á biðlista fyrir tiltekið flug og fengið sæti ef laust er með fluginu. Hoppfargjald er ódýrara en almennt gjald, oftast í kringum 10 þúsund krónur, og því hagkvæmur kostur fyrir unga farþega.

Air Iceland Connect hyggst leggja niður hoppfargjöld þann frá og með 1. júní næstkomandi.Skjáskot/Air Iceland Connect

Segir hoppið ekki lengur ódýrast

Vísir sendi Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Air Iceland Connect, skriflega fyrirspurn vegna málsins í dag. Árni var meðal annars spurður að því af hverju ákveðið var að hætta með hoppið en í svari hans við þeirri spurningu kom fram að hoppfargjöld væru ekki lengur hagkvæmasti valkosturinn.

„Það hefur orðið breyting á framboði fargjalda þannig að nú er Hopp-fargjald ekki lengur ódýrasta fargjaldið heldur bjóðum við fargjöld nú allt niður í 6.900.- á staðfestu fargjaldi og því er það betri valkostur fyrir farþega í mörgum tilfellum,“ segir Árni.

Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Air Iceland Connect.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Almennu fargjöldin góð ef keypt er með fyrirvara

Á vefsíðu Air Iceland Connect er vísað í aðra valkosti með tilkynningu um afnám hoppsins. Viðskiptavinum er bent á svokölluð „Létt fargjöld“ annars vegar og „Flugfélaga“ hins vegar en hið síðarnefnda er auglýst fyrir 12-20 ára. Í því felst að keyptir eru sex flugleggir í einu á 59400 krónur.

Aðspurður hvort flugfélagið muni bjóða upp á ný úrræði fyrir ungt fólk sem hefur ekki efni á hefðbundnum fargjöldum segir Árni að svo sé. Félagið bjóði upp á mjög góð, almenn fargjöld ef farþegar kaupa með fyrirvara og nefnir auk þess áðurnefnda Flugfélaga.

Í þeim séu falin sveigjanleg fargjöld - farþegar sem kjósi þann valkost fái staðfest sæti og því sé það ekki bundið óvissu hvort þeir komist í flug. Þá sé verð í gegnum Flugfélaga sambærilegt og á hoppfargjaldi auk þess sem efri aldurstakmörk Flugfélaga munu hækka úr 20 ára í 25 ára frá og með 1. júní, þ.e. eftir að hoppið er lagt niður.

Aðspurður segir Árni að Air Iceland Connect hafi borist spurningar vegna áðurnefndra breytinga. Hann segir félagið fylgast vel með upplifun farþega af þjónustunni og leggi sig fram við að koma upplýsingum um breytingarnar á framfæri við viðskiptavini sína.

Hoppið hagsmunamál fyrir ungt fólk á landsbyggðinni

Arnheiður Steinþórsdóttir, 24 ára sagnfræðinemi, er uppalin á Ísafirði en flutti til Reykjavíkur þegar hún hóf nám við Háskóla Íslands. Hún segist vonsvikin yfir því að hoppið verði afnumið enda sé valkosturinn mikið hagsmunamál fyrir ungt fólk af landsbyggðinni sem þarf að sækja sér háskólanám í öðrum landshlutum.

„Það er mikilvægt að hafa greiðan aðgang að því að sækja fjölskyldu sína heim í fríum og ef eitthvað kemur upp á. Hoppið hefur reynst fátækum námsmönnum af landsbyggðinni mjög vel í gegnum tíðina og það yrði sorglegt að missa þennan valmöguleika. Sjálf hef ég eflaust tekið flugið mun oftar en ég hefði gert ef hann hefði ekki staðið mér til boða,“ segir Arnheiður.

Arnheiður segir auk þess óvíst hvort að hin úrræði flugfélagsins leysi hoppið almennilega af hólmi. Hún segir t.d. afar óhentugt að farþegar sem nýta sér Flugfélagapakkann þurfi að bóka flug með viku fyrirvara. Léttu fargjöldin henti svo vissulega ágætlega en þar sé erfitt að fá flug á hoppkjörum með skömmum fyrirvara auk þess sem borga þurfi sérstaklega fyrir tösku, sem var innifalin í hoppinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×