Golf

Ekki góð byrjun hjá Ólafíu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. vísir/daníel
Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hóf í dag leik á SIPS Handa Ladies European Masters í Þýskalandi.

Þetta mót er hluti af Evrópumótaröð kvenna.

Ólafía Þórunn kom í hús á 75 höggum í dag eða þremur höggum yfir pari. Hún er jöfn öðrum í kringum 80. sætið.

Þetta er þriðja mótið hjá henni síðan hún tryggði sér þátttökurétt á LET-mótaröðinni.

Sú sem leiðir mótið lék fyrsta hringinn á 66 höggum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×