Innlent

Ekki gengið of langt með launahækkunum

Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga varar við því að nýgerðir kjarasamningar verði fjármagnaðir með uppsögnum í sveitarfélögum. Forseti ASÍ vísar því á bug að gengið hafi verið of langt með kjarahækkunum.

Verðbólga hefur verið að færast í aukana frá áramótum eftir að hafa lækkað stöðugt í tvö ár þar á undan, en hún nemur nú 5%. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að verðbólgustigið sé allt of hátt og það geti þýtt að forsendur um aukinn kaupmátt í nýgerðum kjarasamningum náist ekki.

„Ég ætla ekkert að svara því núna. Það er ljóst að svona mikil verðbólga er auðvitað ógn við markmið þessara kjarasamninga," segir Gylfi.

Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, sagði í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun að hann hefði haft efasemdir um þær efnahagsforsendur sem lagðar voru til grundvallar samningunum, en sérfræðingar spáðu því að verðbólga myndi aukast vegna samninganna. Sveitarstjórnarmenn hafa sagt við hann að launahækkanirnar verði fjármagnaðar með uppsögnum.

„Það er alveg ljóst að kaupmáttur á Íslandi hefur lækkað mjög mikið í þessu hruni," segir Gylfi. Skýringuna sé að finna í veikingu krónunar.

Gylfi segir að vandinn snúi þannig einkum að gjaldmiðlinum og efnahagsstefnu stjórnvalda, en segir að stýrivaxtahækkanir til að eiga við verðbólguvandann væru glapræði.

„Þessi verðbólga er ekki vegna þennslu. Það að fara að hækka vexti til að slá á einhverja þennslu sem er ekki til staðar væru einhver mestu hagstjórnarmistök við þessar aðstæður sem hugsast geta," segir Gylfi.


Tengdar fréttir

Segir sveitarfélög fjármagna kjarasamninga með uppsögnum

„Sveitarstjórnarmenn hafa sagt við mig eftir þessa samninga, sem við höfum auðvitað orðið að gera því getum illa skorið okkur frá ríki og almennum markaði, er á þessa leið - þetta fjármögnum við með því að segja upp fólki,“ segir Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×