Ekki fleiri uppsagnir á dagskrá Sæunn Gisladóttir skrifar 30. september 2016 07:00 Allir viðskiptabankarnir þrír sjá fram á áframhaldandi hagræðingu.
Engar hópuppsagnir eru fyrirhugaðar hjá Landsbankanum og Íslandsbanka, en á miðvikudag var 46 starfsmönnum Arion banka sagt upp. Veigamesta ástæða uppsagnanna var sögð sú staðreynd að viðskiptavinir kjósi að nýta sér sjálfsafgreiðslulausnir eins og bankaapp netbanka og hraðbanka í stað útibúaþjónustu. Afkoma Arion banka og hinna viðskiptabankanna versnaði einnig milli ára á fyrstu sex mánuðum ársins. Heildarhagnaðurinn nam 34 milljörðum króna í ár, samanborið við 42 milljarða króna í fyrra. Hagnaður af reglulegri starfsemi Arion banka dróst saman um fimm milljarða, og hjá Íslandsbanka stóð hann nánast í stað. Fram kemur í svari frá Íslandsbanka að á árinu hafi stöðugildum hjá bankanum fækkað um tuttugu vegna sameiningar útibúa og hafi þær breytingar að miklu leyti náðst í gegnum starfsmannaveltu. Engar uppsagnir liggi fyrir en ljóst sé að stöðugt sé reynt að hagræða. Í svari Landsbankans kemur fram að 23 færri stöðugildi voru hjá Landsbankanum og dótturfélögum hans eftir fyrstu sex mánuði ársins en um áramót, en fækkunin varð að langstærstum hluta af eðlilegum ástæðum. Starfsfólki Arion banka hafði fjölgað um fimmtán á árinu fram að breytingum gærdagsins. Í svari frá bankanum segir að í fyrirtækjarekstri þurfi stöðugt að endurmeta áherslur í starfseminni sem eðlilega þróist og breytist yfir tíma. Það séu ekki frekari hópuppsagnir á döfinni en hins vegar munu áfram verið unnið að því að hagræða í rekstri bankans. Til lengri tíma litið þá mun starfsfólki bankans halda áfram að fækka. Það mun fyrst og fremst gerast í gegnum starfsmannaveltu og svo skipulagsbreytingar, til dæmis vegnar úthýsingar á ákveðnum þáttum starfseminnar sem ekki tilheyra kjarnastarfsemi bankans. Nokkur slík verkefni séu til skoðunar í dag.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Þrjú atriði til að auka á sjálfsöryggið okkar í vinnunni Atvinnulíf Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Viðskipti innlent Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Viðskipti innlent Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Viðskipti innlent Finnur þægilegu heimatilfinninguna þegar hann lendir í Keflavík Atvinnulíf Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hraunflæðihermar og hönnun hraunvarna Hafa náð nýjum sölusamningi í Bandaríkjunum Framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu til Visku Bein útsending: Hrein tækifæri í orkumálum Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Þau vilja stýra Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum Edda og Helgi bætast í hóp eigenda Expectus Segir frumvarp um húsaleigulög geta leitt til hærra leiguverðs Tekur við stöðu rekstrarstjóra Stöðvar 2 Fasteignamarkaðurinn hitnar en framkvæmdum fækkar Eyjólfur vill halda formennsku áfram Tekur við stöðu forstjóra Securitas Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Bankaráðið sakar bankasýsluna um aðdróttanir Guðbjörg orðin pítsudrottning Ritskoðaður bjór fær blessun ÁTVR Annað markaðsleyfi í höfn í Bandaríkjunum Spánski verður Daisy Lilja leiðir nýja markaðs- og sjálfbærnideild Sýnar Byggingaframkvæmdir óralangt frá settum markmiðum Taka við stjórnendastöðum hjá Advania Benedikt tekur við af Andrési hjá SVÞ Tveir stjórnarmenn og forstjóri lögðu til milljarð Loftleiðir með þrjár þotur í lúxusflugi fyrir ríka fólkið Viðræður vegna kaupa á Lyfju að hefjast Dómari þarf ekki að víkja vegna fjölskyldutengsla í máli feðga Skorti heildarmynd í Landsbankamálinu Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Markaðstorg með raforku spretta upp KEA nú stærsti hluthafinn í Norlandair Sjá meira