FÖSTUDAGUR 24. MAÍ NÝJAST 12:23

Ólafur best klæddi þjálfarinn | Þorvaldur neðstur

SPORT

Ekki eitt heldur fimm

Fréttablaðið Gagnrýni 04. júní 2012 20:00
Duo Harpverk, Katie Buckley og Frank Aarnink, fluttu verk eftir fimm tónskáld á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu þann 1. júní.
Duo Harpverk, Katie Buckley og Frank Aarnink, fluttu verk eftir fimm tónskáld á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu þann 1. júní.
Jónas Sen skrifar:
Tónlist. Duo Harpverk frumflutti nokkur verk. Kaldalón í Hörpu á Listahátíð í Reykjavík 1. júní.

Ég set ekki mikið út á tónleikaskrár. Það er fyrst og fremst tónlistin sjálf og hvernig hún er flutt sem skiptir máli. Ég get þó ekki orða bundist vegna tónleikaskrárinnar á tónleikum á Listahátíð á föstudaginn var.

Tónleikarnir voru haldnir af Duo Harpverk. Tvíeykið samanstendur af þeim Katie Buckley hörpuleikara og Frank Aarnink slagverksleikara. Þau fluttu verk eftir fimm tónskáld. Af tónleikaskránni mátti ætla að eitt þeirra væri í einhverju aðalhlutverki. Yfirskriftin var Kátínuvísindin og fleiri verk. Páll Ragnar Pálsson í Hörpu … enginn annar.

Þetta var ekki svona. Kátínuvísindin eftir Pál var aðeins fimmtungur efnisskrárinnar. Hin verkin voru álíka löng og veigamikil. Svona klúður var móðgandi fyrir hin tónskáldin og Listahátíð ekki til sóma.

Fyrsta tónskáldið var Áskell Másson og tónsmíðin hans nefndist Poem. Hún var eingöngu fyrir hörpu, snyrtilega samsett, tónmálið lagrænt og fallegt.

Næst á dagskrá var Peculiar Place fyrir slagverk og hörpu eftir Pétur Grétarsson. Maður hefur hingað til ekki heyrt mikið eftir hann. Hægferðug tónlistin kom skemmtilega á óvart. Hún var mjög leitandi í fyrstu (eins og hún átti greinilega að vera) en náði smám saman fókus. Sá fókus kristallaðist í rólegum en ábúðarfullum takti sem skapaði mikla stemningu.

Dance on Water eftir Andrew Gen. Popoff kom einnig ágætlega út. Tónmálið var nokkuð hefðbundið og minnti á margt sem maður hefur heyrt úr kvikmyndum. Vissulega eru til endalausar klisjur í kvikmyndatónlist, en tónlist Popoffs var ekki klisjukennd. Lagrænn hörpuleikur lá til grundvallar, en í kringum hann dönsuðu hendingar ólíkra slagverkshljóðfæra. Þessar mismunandi raddir samsvöruðu sér ágætlega.

Ég var ekki eins sannfærður um ágæti tónverks eftir Völu Gestsdóttur, Restless. Ég vil taka það fram að ég heyrði frábært lag eftir hana á Myrkum músíkdögum. En það sem nú var flutt virkaði sundurlaust. Tölvuhljóð (eftir Úlf Hansson) hljómuðu auk þess eins og hreinn óþarfi.

Vissulega átti tónlistin einmitt að fjalla um eirðarleysi og einbeitingarskort, líkt og titillinn gaf til kynna. En samt hefði þurft meiri undiröldu, sterkari þráð, eitthvað sem tengdi ólíka hluta betur saman. Það vantaði heildarsvipinn.

Síðast á dagskránni var „aðal tónsmíðin“ eftir fyrrnefndan Pál Ragnar Pálsson: Kátínuvísindin – Hýperbólusetning og Parabólusetning við ljóð eftir Eirík Örn Norðdahl. Þar steig fram á svið sópransöngkonan Tui Hirv og söng framandi laglínur. Hún gerði það fallega, röddin var þétt og ágætlega fókuseruð. Laglínurnar voru skemmtilegar, og ég dáðist að öllum litunum sem ólík slagverkshljóðfæri ásamt hörpunni framkölluðu. Þetta voru endalaus blæbrigði, allskonar skrýtin áferð, furðulegir hljómakokteilar. Mögnuð heild, það.

Niðurstaða: Glæsilegur hljóðfæraleikur, verkin flest áhugaverð, en tónleikaskráin hroðvirknisleg.

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Gagnrýni 07. maí 2013 17:00

Kaflaskipt Babúsku-frumraun

Á köflum gengur blandan af þjóðlaga- og rafpoppi mjög vel upp hjá Grúsku Babúsku. Meira
Gagnrýni 07. maí 2013 17:00

13 spora kerfi fyrir varúlfa

Hressileg og vel skrifuð unglingasaga með sannferðugum persónum og skemmtilegri útfærslu á átökunum við fíkniefnaneyslu. Meira
Gagnrýni 06. maí 2013 11:30

Óreiðukennt uppgjör við Geirfinnsmálið

Hvörf er hörð ádeila á íslenskt réttarkerfi og glæpsamlega meðferð yfirvalda í einu stærsta sakamáli íslensku þjóðarinnar sem líður fyrir óreiðukennda framsetningu. Meira
Gagnrýni 03. maí 2013 11:35

Allt er þegar þrennt er

Myndin er bæði fyndnari og meira spennandi en forverar hennar, og þrátt fyrir brellusúpuna verður áhorfandinn aldrei dasaður. Meira
Gagnrýni 03. maí 2013 00:01

Ástir, örlög og saxófónn

De Palma er bestur þegar hann reynir ekki að vera annar en hann er. Ég trúi því að hann geti gert miklu betur. Meira
Gagnrýni 26. apríl 2013 15:00

Helvíti – það eru hinir

Nesser er í hópi þeirra bestu og þótt sagan kraumi ekkert af spennu er hún djúp og næm lýsing á samskiptum innan fjölskyldu. Lögreglumaðurinn Barbarotti er líka skrattanum skemmtilegri. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 15:45

Fínasti fugl

Áhugavert en óþægilegt unglingadrama. Aðalleikarinn Styr Júlíusson er hæfileikaríkur piltur. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 11:30

Leikhús á öðru plani

Fullkomin útfærsla á skáldsögunni. Mögnuð leikhúsupplifun þar sem unnið er með mörk heilbrigðis og geðsýki á áhrifamikinn hátt sem lætur engan ósnortinn. Meira
Gagnrýni 22. apríl 2013 11:00

Furðuskepnan konan

Krúttlegt leikrit um líkama og sálarástand konunnar en ristir ekki sérstaklega djúpt. Meira
Gagnrýni 21. apríl 2013 14:45

Leikur tveimur skjöldum

Íslenska landslagið nýtur sín afar vel í Oblivion og ekki skemmir glæsileg myndatakan. Meira
Gagnrýni 21. apríl 2013 13:54

Til hamingju Þjóðleikhús

Ævintýri þulið af bjána, fullt af mögli og bulli og merkir ekki neitt. Það er þannig sem Páll Ólafsson lýsir sínum skáldaða veruleika. Þeim veruleika sem stóra svið Þjóðleikhússins hýsir um þessar mun... Meira
Gagnrýni 16. apríl 2013 12:00

Erfið úrvinnsla ástarinnar

Hjalti Rögnvaldsson og Svandís Þóra Einarsdóttir fara með aðalhlutverk í verkinu sem gerist á sveitabæ einum, norður í landi. Meira
Gagnrýni 16. apríl 2013 12:00

ELO-sándið endurskapað í Eldborg

Miðaldra áheyrendahópur fékk nostalgíukastið sem hann borgaði fyrir. Ótrúlega vel tókst til með vandmeðfarið sánd. Meira
Gagnrýni 11. apríl 2013 07:00

Kraftmikið poppkornsfjör og pönkgleði

G.I. Joe: Retaliation er heimskuleg og yfirdrifin. Persónusköpunin er arfaslök og tæknibrellurnar misgóðar. Samt hefur hún eitthvað. Heilmikið meira að segja, því hún er þrælskemmtileg framan af. Meira
Gagnrýni 08. apríl 2013 11:00

Aumir brosvöðvar eftir góða sýningu

Vel lukkað uppistand. Craig Campbell bar af. Ari Eldjárn var pottþéttur að venju. Meira
Gagnrýni 05. apríl 2013 10:00

Óður til leikgleðinnar - og Rambós

Frábær sýning. Kristjáni og félögum tekst þarna að skapa eitthvað fjörugasta skrifstofudrama sem hefur verið fært á svið hér á landi. Meira
Gagnrýni 28. mars 2013 06:00

Berskjaldað búnt

Það er örugglega meira en að segja það að fá áhorfandann til að trúa því að mennskur skriðdreki á borð við Johnson geti verið svona berskjaldaður. Meira
Gagnrýni 25. mars 2013 17:00

Hömluleysi á Jónsmessunótt

Ögrandi og djörf sýn ungs leikhúsfólks á William Shakespeare. Meira
Gagnrýni 21. mars 2013 12:00

Skemmtilegt hliðarspor

Ferskir og flottir taktar frá Thom Yorke og félögum, en lagasmíðarnar hefðu mátt vera sterkari. Meira
Gagnrýni 18. mars 2013 06:00

Grái fiðringurinn fer Grant vel

Frábærir útgáfutónleikar, með þéttri hljómsveit og ótrúlega einlægum og góðum söngvara Meira
Gagnrýni 16. mars 2013 06:00

Besti Tomb Raider í langan tíma

Nýi Tomb Raider-leikurinn nær að blása nýju lífi í leikjaseríuna með miklum hasar, skemmtilegum þrautum og fallegri framsetningu. Meira
Gagnrýni 14. mars 2013 06:00

Rómantískt sjónarhorn

Snotur sýning, eins konar sýnishorn fyrir ákveðin tímabil í listasögunni, og gefur smá viðbótarinnsýn í íslenska listsköpun fyrir og eftir aldamótin 1900. Meira
Gagnrýni 11. mars 2013 13:45

Áhætta sem borgaði sig

Útkoman er í einu orði sagt frábær. Biggi Veira klæðir sígildar lagasmíðar Johns Grant í nýjan búning. Meira
Gagnrýni 11. mars 2013 13:45

Kynlíf og dóp en ekkert rokk

Bíð spennt eftir framhaldsbókunum tveimur sem Ejersbo rétt náði að búa til útgáfu áður en hann lést. Meira
Gagnrýni 07. mars 2013 06:00

Raf- og taktvæddar Árstíðir

Árstíðir er ein af þessum harðduglegu íslensku hljómsveitum sem fjármagna plöturnar sínar sjálfar og spila úti um allar trissur. Meira

Tarot

  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Ekki eitt heldur fimm
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000