Innlent

Ekki búið að ákveða hvenær maðurinn verður yfirheyrður aftur

Birgir Olgeirsson skrifar
Maðurinn sem er í haldi vegna málsins var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness þar sem hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald og einangrun.
Maðurinn sem er í haldi vegna málsins var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness þar sem hann var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald og einangrun. vísir/anton brink
„Það er ekki ákveðið hvenær á að yfirheyra hann næst,“ segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um manninn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald og einangrun í gær til tveggja vikna grunaður um aðild að dauða Birnu Brjánsdóttur.

Birna hvar aðfaranótt laugardagsins 14. janúar síðastliðinn. Hún sást síðast á gangi við Laugaveg 31 klukkan 05:25 umrædda laugardagsnótt. Lík hennar fannst svo við Selvogsvita í Ölfusi átta dögum síðar, 22. janúar síðastliðinn.

Maðurinn sem sætir gæsluvarðhaldi og einangrun er sá sem lögregla telur að hafi ekið Kia Rio-bifreið í miðbæ Reykjavíkur um það leyti sem Birna hvarf.

Lögreglan hefur greint frá því að lífsýni sem fannst í bílnum sé úr Birnu og það sé staðfesting á því að hún hafi verið í bílnum.

Aðspurður hvers vegna ekki hafi verið ákveðið hvenær maðurinn verður yfirheyrður aftur vegna rannsóknar málsins segir Grímur enga sérstaka ástæðu fyrir því.

Annar maður var í haldi vegna rannsóknar málsins en honum var sleppt úr haldi í gær eftir tveggja vikna einangrunarvist. Hann var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness í gær þar sem hann staðfesti þann framburð sem hann hafði gefið hjá lögreglu. Hann var ekki látinn sæta farbanni og fór til Nuuk á Grænlandi með áætlunarflugi Flugfélags Íslands í gærkvöldi.

Grímur segir í samtali við Vísi að hann sé enn með stöðu sakbornings vegna málsins. Jón H.B. Snorrason, yfirsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við Vísi í gær að maðurinn væri að sjálfsögðu ekki látinn laus ef hann væri sakaður um manndráp.


Tengdar fréttir

Birna Brjánsdóttir borin til grafar í dag

„Jarðarförin er opin og í raun og veru má fólk koma. Svo er erfisdrykkja í flugskýli Landhelgisgæslunnar á eftir sem er líka opin,“ segir Sigurlaug Hreinsdóttir

Skipverjinn sem látinn var laus farinn úr landi

Maðurinn sem losnaði úr haldi lögreglu í dag eftir að hafa setið í einangrun í tvær vikur, grunaður um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, er farinn úr landi.

Kærir úrskurðinn til Hæstaréttar

Verjandi skipverjans sem var í dag úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald hefur kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Stúlkan sem snerti streng í brjósti íslensku þjóðarinnar

Birna Brjánsdóttir verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju klukkan 15 í dag. Óhætt er að segja að mál hennar hafi hreyft við þjóðinni en hún hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar og fannst látin í fjörunni við Selvogsvita átta dögum síðar. Lögreglan telur að henni hafi verið ráðinn bani.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×