Skoðun

Ekki bugast vegna órökrétts ótta

Lars Christensen skrifar
Eftir því sem landfræðipólitísk spenna í Úkraínu hefur magnast og stríðið í Sýrlandi virðist versna dag frá degi hef ég hugsað sífellt meira um áhrif slíkra atburða á markaði og hagkerfi. Eitt er að skilja hvað er um að vera og annað að skilja hagfræði slíkra atburða. Hvaða áhrif hefur landfræðipólitísk spenna eða hryðjuverk á fjárfestingar og neysluákvarðanir?

Flestum hættir til að gefa sértækar skýringar á efnahagslegum og fjárhagslegum áhrifum slíkra atburða. En það er ekki þannig sem ég myndi líta á þetta. Tækin sem hagfræðingar nota til að skilja verðlagningu bjórs eða eftirspurn eftir fótboltamiðum má einnig nota til að skilja til dæmis sjálfsmorðssprengjuárásir eða hvernig markaðir bregðast við landfræðipólitískri spennu.

Þetta var lykilboðskapur nóbelsverðlaunahafans Gary Becker, sem lést 2014. Becker hlaut nóbelsverðlaunin í hagfræði 1992 „fyrir að hafa fært vettvang rekstrarhagfræðilegrar greiningar yfir á margvísleg svið mannlegrar hegðunar og samskipta, þar á meðal hegðunar utan markaða“.

Í grein um „Ótta og viðbrögð við hryðjuverkum“ frá 2011, sem hann skrifaði með Yona Rubinstein, sýndi Gary Becker fram á að áhrif hryðjuverka á efnahagsstarfsemi væru oft skammvinn og þótt þau væru kostnaðarsöm gæti fólk lært að hafa stjórn á ótta sínum, og að efnahagshvatar hefðu áhrif á hve vel það tækist.

Raungreining þeirra á sjálfsmorðsárásum í Ísrael sýndi að þótt áhrif sjálfsmorðsárása væru mikil fyrst í stað væru áhrifin skammvinn og kæmu til dæmis ekki í veg fyrir að fólk notaði strætisvagna. Kostnaðurinn við að láta undan (órökréttum) ótta væri einfaldlega of mikill svo að þeir sem hugsa rökrétt myndu einfaldlega, og það með réttu, álykta sem svo að hættan á að verða fórnarlamb hryðjuverka væri mjög lítil – jafnvel í Ísrael.

Þetta gæti hjálpað okkur að skilja af hverju aukin landfræðipólitísk spenna á undanförnum árum hefur haft tiltölulega lítil áhrif á fjármálamarkaði heimsins. Það er kostnaðarsamt að viðhalda órökréttum ótta við landfræðipólitískar hættur. Jú, aukin landfræðipólitísk spenna getur vissulega haft neikvæð áhrif á hagkerfi víða um heim, en það er mjög lítil ástæða til að halda að annaðhvort stríðið í Sýrlandi eða bardagar í Úkraínu hafi einhver meiriháttar áhrif á hagkerfi heimsins. Það er ekki ætlunin að vera kaldhæðinn, og á því leikur enginn vafi að við höfum séð gífurlega miklar mannlegar þjáningar bæði í Úkraínu og Sýrlandi, en það ætti ekki að fá okkur til að láta undan órökréttum ótta. Það eru ekki hryðjuverk og landfræðipólitík sem eru líklegust til að leiða til heimskreppu, heldur hættan á mistökum seðlabanka heimsins.




Skoðun

Sjá meira


×