Fótbolti

Ekki bera Ödegaard saman við Messi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Martin Ödegaard byrjar að spila með B-liði Real Madrid.
Martin Ödegaard byrjar að spila með B-liði Real Madrid. vísir/getty
Jan Åge Fjörtoft, fyrrverandi leikmaður Middlesbrough og Sheffield Wednesday, segir það algjört rugl að bera norska undrabarnið Martin Ödegaard saman við Lionel Messi.

Fjörtoft, sem spilaði 71 landsleik fyrir norska landsliðið á gullaldarárum þess á síðasta áratug síðustu aldar, hefur trú á ungstirninu en vill ekki sjá svona samanburð.

„Það er algjör þvæla hjá fjölmiðlum að bera Ödegard saman við Messi. Messi er leikmaður sem getur breytt leikjum og Martin getur það líka, en það á ekki að taka svona samanburð alvarlega,“ segir Fjörtoft í viðtali við Goal.com.

Lionel Messi er fjórfaldur Gullboltahafi.vísir/getty
„Martin er aðeins 16 ára gamall og hann á að fá að hegða sér eins og unglingur. Hann á að fá tíma til að þroskast og taka eitt skref í einu. Hann hefur nú þegar sýnt að hann getur tekið áskorunum.“

Ef það á að bera saman Ödegaard saman við einhvern horfir Fjörtoft frekar til þýskra landsliðsmanna sem sjálfir voru barnastjörnur.

„Martin finnur ekkert fyrir neinni aukinni pressu. Við þurfum að bera stöðu hans saman við leikmenn sem eru traustir í dag eins og Bastian Schweinsteiger, Phillip Lahm og Toni Kroos. Þeim var öllum hampað af fjölmiðlum einu sinni og eru fyrirmyndir í dag,“ segir Fjörtoft.

„Fótboltamenn framtíðarinnar þurfa ekki bara hæfileika. Þeir þurfa að leggja mikið á sig, vera agaðir og æfa meira en aðrir. Menn verða að elta sín markmið og vera fagmannlegir.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×