Skoðun

Ekki bara neikvæðar upplifanir – frábær gagnrýni í National Geographic

Ragnheiður Harpa Haraldsdóttir skrifar
Nýverið hafa farið hátt viðtöl við ferðafólk sem blöskrar verðlag hér á landi. Nú síðast tók par frá Bretlandi svo djúpt í árinni að þeim leið eins og það hafi verið í haldi fjárkúgara á meðan þau dvöldu hér á landi. Auðvitað er margt sem betur má fara hvað ferðamennsku varðar, en það eru síður en svo neikvæðar umsagnir eða upplifanir sem einkenna endurgjöfina sem við fáum frá okkar viðskiptavinum. 

Í samtali við National Geographic segir Meg Calnan, framkvæmdarstjóri samskiptasviðs ferðahluta blaðsins, frá hápunktum heimsóknar sinnar til Íslands. Þar er náttúran í aðalhlutverki, enda er hún, að margra mati, það verðmætasta sem við eigum. Meg nefnir jökla, fossa, norðurljós og veðrið í því samhengi. Það sem Meg segir hafa verið annan hápunkt ferðar sinnar er leiðsögumaðurinn, Gilli, en hvergi minnist hún á verðlag.

Því er nefnilega þannig farið að innan ferðaþjónustunnar starfar fjöldi fólks af ástríðu og alúð og það er þetta fólk sem hjálpar ferðamönnum að skapa ódauðlegar minningar. Og fyrir þær eru ferðamenn tilbúnir að borga. Gilla, sem heitir Þorgils Gunnarsson fullu nafni, er lýst sem stórkostlegum leiðsögumanni; þolinmóðum, fyndnum og sveigjanlegum. Í rauninni var Gilli sá þáttur, að mati Meg, sem færði heimsóknina á hærra plan. Enda ómetanlegt að ferðast um framandi staði með leiðsögumanni sem þekkir umhverfið vel. 

Val á sjónarhorni

Við höfum alltaf val um það hvernig við horfum á hlutina, hvort sem við erum ferðamenn, ferðaskipuleggjendur eða blaðamenn getum við valið okkur sjónarhorn. Ferðalög kosta alltaf eitthvað og Ísland verður líklega aldrei „ódýr“ áfangastaður en ég held að við ættum að líta á stóru myndina áður en við förum að segja fleiri sögur af óánægðu fólki, við ættum að tala okkur upp frekar en niður og fagna því sem vel er gert í stað þess að einblína á hið neikvæða. Greinin í National Geographic segir miklu áhugaverðari sögu um stöðu ferðaþjónustunnar á Íslandi því sem haldið er að okkur í íslenskum fjölmiðlum.




Skoðun

Sjá meira


×