Viðskipti innlent

Ekki allir sáttir við auglýsingu Dekkverks: Viðbrögðin koma eiganda verkstæðisins á óvart

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Auglýsingin umdeilda sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Auglýsingin umdeilda sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
Auglýsing dekkjaverkstæðisins Dekkverks í Fréttablaðinu í morgun hefur vakið mikla athygli netverja en á henni má sjá dekk í líki nakins kvenlíkama.

Auglýsingunni hefur verið deilt í hópum á Facebook á borð við Beauty Tips 30+ og Markaðsnörda en sitt sýnist hverjum um markaðssetninguna þar sem kvenmannslíkaminn er notaður til að vekja athygli á vöru.

Einhverjir hafa lýst því yfir að þeir ætli að hætta að skipta við Dekkverk vegna auglýsingarinnar þar sem verið sé að hlutgera kvenlíkamann í enn eitt skiptið og það sé hallærislegt árið 2015.

Guðmundur Örn Guðjónsson, eigandi Dekkverks, segist í samtali við Vísi ekki skilja hvers vegna auglýsingin hafi valdið svona miklum usla. 

„Við birtum þessa auglýsingu af því að þetta er flott mynd. Við sáum ekkert að henni. Það var ekki ætlunin að móðga neinn og við erum ekki viljandi að reyna að móðga fólk. Þessi viðbrögð koma mér mjög á óvart þar sem við vorum með sambærilega mynd af karlmanni í fyrra sem var búið að móta svona í dekk og fengum mjög góðar viðtökur við því. Ég skil ekki hver munurinn er á þeirri mynd og myndinni sem við birtum núna,“ segir Guðmundur.

Verið að gera úlfalda úr mýflugu

Hann segir myndina koma frá West Lake-dekkjaframleiðandanum og hún hafi verið birt í mun fleiri löndum en bara hér á landi. Guðmundur segir að hún hafi ekki verið gagnrýnd neins staðar nema hér. 

Undir orð hans tekur Astrid Daxböck sem starfar í bókhaldinu hjá Dekkverki. Hún sá bæði myndirnar af karlinum og konunni áður en þær birtust og segir þær báðar jafnflottar.

„Þetta er nokkurs konar dekkjalist og ég sá ekki neitt að þessu, hvorki að myndinni af karlmanninum né núna af konunni. Ég skil ekki alveg af hverju það er í lagi að birta mynd af karlmanni en svo núna þegar það er birt mynd af konu þá gerir fólk athugasemdir,“ segir Astrid. Hún segir að mikið fólki hafi hringt inn á verkstæðið í dag og kvartað.

Guðmundur segir að þetta sé dæmi um það þegar úlfaldi sé gerður úr mýflugu.

„Við hlæjum að þessu hérna á verkstæðinu, bæði konurnar og karlarnir sem vinna hérna. En við munum að öllum líkindum ekki nota myndir af konum í framtíðinni, bara körlum,“ segir Guðmundur.

Sambærileg auglýsing með karllíkama sem Guðmundur segir að hafi birst í fyrra.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×