Ekkert um Al Thani í lánayfirliti Kaupþings Helga Arnardóttir skrifar 5. ágúst 2009 12:07
Ekkert finnst um lán Kaupþings til sjeiksins Al Thanis frá Katar í lányfirliti bankans sem lekið var á netið fyrir skömmu. Eignarhaldsfélag hans keypti hlut í bankanum undir lok september í fyrra fyrir tuttugu og fimm milljarða króna. Þar með varð hann þriðji stærsti hluthafi Kaupþings. Í tilkynningu frá KaupÞingi sem var dagsett tuttugasta og annan september í fyrra kemur fram að Q Iceland Finance ehf dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf sem er eignarhaldsfélag Sheikh Mohammed Al Thani hafi keypt fimm prósenta hlut í Kauþingi á tuttugu og fimm milljarða. Með kaupunum varð Al thani þriðji stærsti hluthafi bankans. Samkvæmt heimildum fréttastofu fékk Al thani að minnsta kosti tólf og hálfan milljarð lánaðan frá Kaupþingi án þess að leggja nokkur önnur veð fyrir láninu. Í sömu tilkynningu er vitnað í Sigurð Einarsson stjórnarformann Kaupþings þar sem hann býður sheikinn velkominn í hluthafahóp bankans og segir það lengi hafa verið stefna hans að laða nýja fjárfesta að bankanum og því hafi verið ánægjulegt að sjá að náðst hafi að breikka hluthafahópinn enn frekar. Í lánayfirlitinu sem nýlega var lekið á heimasíðuna Wikileaks um stærstu viðskiptavini bankans er ekki að sjá orð um lán til félaga í eigu sheiksins. Yfirlitið er dagsett 25. september eða þremur dögum eftir að Kaupþing tilkynnti um kaup sheiksins. Hvorki Steinar Þór Guðgeirsson formaður skilanefndar gamla Kaupþings né Finnur Sveinbjörnsson bankastjóri nýja Kaupþings hafa heimild til að tjá sig um málefni einstakra viðskipta vina en þetta sagði Finnur þegar hann var spurður um málið í gær. Samkvæmt heimildum fréttastofu er líklegt að lánayfirlitið sem lagt var fyrir stjórnina þann 25.september hafi ekki innihaldið allra nýjustu upplýsinga um lán bankans til viðskiptavina sinna.
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira