Innlent

Ekkert öryggi í „lokuðum grúppum“

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Það er ekki til neitt sem heitir lokaður hópur á samfélagsmiðlum þegar meiðyrði eru annars vegar.
Það er ekki til neitt sem heitir lokaður hópur á samfélagsmiðlum þegar meiðyrði eru annars vegar. Vísir/GVA/GVA
Það er ekki til neitt sem heitir lokaður hópur á samfélagsmiðlum þegar meiðyrði eru annars vegar. Hæstaréttarlögmaður segir það ekki skipta máli fyrir refsinæmi ummæla hvort að þau eru látin falla á lokuðu svæði eða ekki. 

Hæstiréttur staðfesti í vikunni sýknudóm í meiðyrðamáli sem Egill Einarsson höfðaði á hendur Inga Kristjáni Sigurmarssyni fyrir ærumeiðandi aðdróttun. Málið snerist um mynd sem Ingi birti á samfélagsmiðlinum Instagram.

Hluti málsvarnar Inga var á þá leið að hann hafi sannarlega sett myndina inn á Instagram en það sem sem slíkt hafi ekki falið í sér raunverulega birtingu samkvæmt almennum hegningarlögum, þar sem takmarkaður fjöldi manna hafði aðgang að henni.

Með öðrum orðum: Ingi stjórnaði því hver sá myndina af Agli. Þetta þekkja flestir sem nota samfélagsmiðla. Með stillingu skilmála um friðhelgi teljum við okkur vera nokkuð örugg, segjum mögulega eitthvað misjafnt, til dæmis í lokuðum hópum, sem við annars hefðum ekki gert. Það hlýtur að vera í lagi, eða hvað?

Nýfallin dómur Hæstaréttar, sem er athyglisverður í þessu ljósi, segir nei, eða orðrétt: „Ekki verður á það fallist, enda telst það birting samkvæmt hefðbundinni skýringu á hugtakinu að eitthvað sé gert aðgengilegt á rafrænan hátt fyrir jafn stóran hóp og að framan greinir, án tillits til þess hvort í hlut eiga vinir og kunningjar þess sem það gerir.“

Stóra spurningin er því þessi: Er munur á því að fullyrða að einhver sé nauðgarasvín eða annað í lokaðri grúppu og að básúna um það á opinberu vettvangi? Svarið er nei.

„Það er enginn munur á því,“ segir Gunnar Ingi Jóhannesson, hæstaréttarlögmaður. „Að minnsta kosti hvað varðar hvort ummælin geti talist refsiverð eða ekki. Hinsvegar hvort að þau eru látin falla opinberlega eða ekki, það hefur bara áhrif á þyngd refsingar eða mögulega fjarhæð miskabóta.“

Á síðustu árum hafa dómstólar tekið fjölmörg mál til umfjöllunar þar sem ærumeiðandi ummæli og samfélagsmiðlar koma til kasta. 

„Það hefur verið reynt á þetta í lokuðum hópum á Facebook, MySpace og nú Instagram og í öllum tilvikum held ég að dómstólar hafi komist að þeirri niðurstöðu að ummæli sem eru látin falla á þessum miðlum séu látin falla opinberlega og menn verða að gæta að því.“


Tengdar fréttir

Nauðgaraummælin standa

Egill Einarsson tapaði meiðyrðamáli gegn Inga Kristjáni Sigurmarssyni, sem skrifaði "Fuck you rapist bastard“ á mynd af honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×