Innlent

Ekkert nema rautt í kortunum út næstu viku

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Íslendingar hafa varla farið varhluta af blíðviðrinu sem ríkt hefur víðsvegar um land í dag. Fastlega má gera ráð fyrir að blíðviðrið haldist út alla næsta viku. Gera má ráð fyrir 15-20 stiga víða um land í vikunni.

Aðspurður hvað veldur svarar vakthafandi veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands því að loftþrýsingur í kringum landið sé tltöluleg hár. 

„Lægðirnar eru að athafna sig suður af. Lægðabrautirnar eru vestur af Írland og þær hringsólar þar. Hér er svo austanátt sem dælir yfir okkur heitu lofti.“

Austfirðingar þurfa þó að sætta sig við það í þessum aðstæðum getur skapast þoka sem eitthvað gæti skyggt á sólina.

Síðdegis í dag má búast við stöku skúrum vestanlands. Á fimmtudag og föstudag má einnig gera ráð fyrir úrkomu, a.m.k. sunnan- og vestanlands.





Veðurhorfur á landinu

Hægviðri eða hafgola og yfirleitt léttskýjað inn til landsins, en þokubakkar við ströndina. Sums staðar skúrir V-til á landinu síðdegis. Hiti frá 8 stigum í þokulofti við strendur upp í 22 stig í innsveitum. Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum vestanlands á morgun, annars víða bjart veður og áfram hlýtt.

Á mánudag:

Hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar rigning fyrir norðan. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast SV-lands.

Á þriðjudag:

Austlæg átt, skýjað með köflum og dálítil væta A-lands, en rigning við S-ströndina seinni partinn. Hiti frá 8 stigum austast, upp í 19 stig SV- og V-landi.

Á miðvikudag, fimmtudag og föstudag:

Austanátt, skýjað að mestu en úrkomulítið og fremur hlýtt.

via GIPHY




Fleiri fréttir

Sjá meira


×