Fótbolti

Ekkert mark á Old Trafford

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rooney og félagar þurfa að ná í úrslit gegn Wolfsburg í lokaumferð riðlakeppninnar.
Rooney og félagar þurfa að ná í úrslit gegn Wolfsburg í lokaumferð riðlakeppninnar. vísir/getty
Manchester United tókst ekki að skora þegar Hollandsmeistarar PSV Eindhoven komu í heimsókn á Old Trafford í kvöld. Lokatölur 0-0.

United er í 2. sæti B-riðils með átta stig en liðið á erfiðan leik fyrir höndum gegn Wolfsburg á útivelli í lokaumferðinni eftir tvær vikur.

Þýska liðið, sem vann CSKA Moskvu á útivelli fyrr í dag, er í 1. sæti riðilsins með níu stig en PSV í því þriðja með sjö stig.

United-menn byrjuðu báða hálfleikana vel en tókst ekki að koma inn marki. Anthony Martial og Jesse Lingard fengu bestu færin í sitt hvorum hálfleiknum en nýttu þau ekki.

Stuðningsmenn United voru ekki sáttir með sína menn í kvöld og púuðu á þá þegar Pavel Kralovec, dómari leiksins, flautaði til leiksloka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×