Fótbolti

Ekkert íslenskt félag hefur beðið lengur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar á æfingu í gær.
Víkingar á æfingu í gær. Vísir/Andri Marinó
Víkingar setja nýtt met í kvöld þegar þeir spila sinn fyrsta Evrópuleik frá árinu 1992 en ekkert íslenskt félag hefur þurft að bíða lengur á milli Evrópuleikja.

Víkingar bæta nú sex ára gamalt met Framara frá 2009 sem þá spiluðu sinn fyrsta Evrópuleik í 17 ár. Þegar Framarar settu metið höfðu KR (1984) og Keflavík (1994) þurft að bíða lengst eða í fimmtán ár hvort félag.

Víkingar komust síðast í Evrópukeppni eftir að liðið varð Íslandsmeistari 1991 en það liðu alls 8.310 dagar  á milli Evrópuleikja Víkinga eða nákvæmlega 22 ár, 9 mánuðir og 2 dagar. Á þeim tíma hafði Víkingsliðið fimm sinnum fallið úr deildinni og fimm sinnum komið upp aftur.

Flest ár á milli Evrópuleikja

23 Víkingur (1992-2015)

17 Fram (1992-2009)

15 Keflavík (1979-1994)

15 KR (1969-1984)

13 KA (1990-2003)

13 Valur (1993-2006)

12 ÍBV (1984-1996)



Engir Evrópudraumar hingað til

Víkingar hafa ekki tekið þátt í Evrópukeppni í 23 ár en fá nú tækifæri til að gera það sem engu Víkingsliði hefur tekist í tíu Evrópuleikjum félagsins frá 1972 til 1992.

Víkingur á nefnilega enn eftir að vinna leik í Evrópukeppni þar sem allir þessir tíu Evrópuleikir félagsins hingað til hafa tapast.

Víkingsliðið skoraði ekki í fyrstu fimm Evrópuleikjum sínum en fyrsta Evrópumarkið skoraði Jóhann Þorvarðarson strax á fyrstu mínútu í útileik á móti spænska Baskafélaginu Real Sociedad í september 1982.

Jóhann skoraði líka í útileik á móti ungverska liðinu Gyor árið eftir og er markahæsti Víkingurinn í Evrópukeppni með tvö mörk.

Síðasta mark Víkinga í Evrópukeppni skoraði Guðmundur Steinsson mínútu eftir að hann kom inn á sem varamaður í 2-4 tapi á móti CSKA Moskvu á Luzhniki-leikvanginum 30. september 1992.


Tengdar fréttir

Ég veit nánast allt um þetta lið

Víkingur spilar sinn fyrsta Evrópuleik í 23 ár í kvöld þegar liðið tekur á móti Koper frá Slóveníu. Hörður Theodórsson var einn af þeim sem spilaði síðasta Evrópuleik Víkinga gegn rússneska liðinu CSKA Mosvku haustið 1992 og segir hann það hafa verið mikla upplifun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×