Sport

Ekkert gengur hjá Colts í upphafi tímabilsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Andrew Luck er hér rifinn niður af varnarmanni New York Jets.
Andrew Luck er hér rifinn niður af varnarmanni New York Jets. Vísir/Getty
Það er ekki sjón að sjá Indianapolis Colts í upphafi tímabilsins en liðið tapaði öðrum leik sínum í röð í 7-20 tapi gegn New York Jets í lokaleik 2. umferðar NFL-deildarinnar í nótt.

Colts fengu skell strax í fyrstu umferð 27-14 gegn Buffalo Bills en miklar væntingar voru gerðar til liðsins í ár eftir að hafa tapað í úrslitum AFC-deildarinnar á síðasta tímabili.

Bætti liðið við sig reynsluboltunum Frank Gore og Andre Johnson til að aðstoða við sóknarleikinn í sumar en leikstjórnandi liðsins, Andrew Luck, hefur verið ólíkur sjálfum sér í upphafi tímabilsins.

Jets komust yfir strax í fyrsta leikhluta en þeir fengu frábæra vallarstöðu eftir mistök í sóknarleik Colts. Sendi Ryan Fitzpatrick, leikstjórnandi Jets, boltann á Eric Decker sem skoraði fyrsta snertimark leiksins.

Heimamenn í Colts komust á blað í fjórða leikhluat þegar Donta Moncrief skoraði snertimark eftir sendingu frá Luck en stuttu síðar bættu Jets við öðru snertimarki frá Brandon Marshall eftir sendingu Fitzpatrick. Nick Folk bætti við tveimur vallarmörkum fyrir Jets sem tryggðu á endanum sigurinn.

Er þetta annað árið í röð sem Colts tapa fyrstu tveimur leikjum tímabilsins en áhyggjuefnið hlýtur að vera frammistaða leikstjórnanda liðsins. Kastaði Luck boltanum í hendur andstæðingsins þrisvar í nótt og tapaði boltanum einu sinni þar að auki.

Colts mæta Tennesee Titans á sunnudaginn næstkomandi en á sama tíma taka Jets á móti Philadelphia Eagles.

NFL

Tengdar fréttir

Julio Jones frábær í naumum sigri Atlanta Falcons

Atlanta Falcons missti niður sautján stiga forskot í seinni hálfleik en náði að stela sigrinum með vallarmarki þegar skammt var til leiksloka í gær. Þá vann San Fransisco 49ers sannfærandi sigur á Minnesota Vikings í lokaleik fyrstu umferðar NFL-deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×