Innlent

Ekkert ferðaveður undir Eyjafjöllum: Strætó fauk út af vegi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Lögreglan varar við vondu veðri og er spáin slæm fram eftir kvöldi.
Lögreglan varar við vondu veðri og er spáin slæm fram eftir kvöldi.
Lögreglan á Hvolsvelli hefur sent frá sér viðvörun en ekkert ferðaveður er undir Eyjafjöllum og austurundir Kirkjubæjarklaustur.

Mjög hvasst er á svæðinu og fauk m.a. strætó út af veginum yfir Reynisfjall. Engin slys urðu á fólki og bíllinn lítið skemmdur.

Lögreglan varar við vondu veðri og er spáin slæm fram eftir kvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×