Innlent

Ekkert „hvíttað“ í skýrslu um aflandsfélög

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson settist í stól forsætisráðherra á miðvikudag.
Bjarni Benediktsson settist í stól forsætisráðherra á miðvikudag. vísir/vilhelm
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu um frágang á skýrslu starfshóps ráðuneytisins um eignir Íslendinga á aflandssvæðum. Í henni segir að enginn texti í skýrslunni hafi verið „hvíttaður“ eins og fullyrt hafi verið í fjölmiðlum.

„Eftir að skýrslunni var skilað til ráðuneytisins um miðjan september var henni ekki breytt efnislega. Hins vegar voru gerðar smávægilegar lagfæringar af eða í samráði við formann starfshópsins, m.a. á titli hennar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að titillinn hafi verið skrifaður í textaborð af ákveðinni stærð og þar sem lagfærður titill hafi verið lengri en sá upprunalegi hafi textinn færst niður og orðið lengri en stærð textaboxins leyfði. Þá hafi hluti undirfyrirsagnarinnar og annar texti færst niður og af þeim sökum hafi dagsetningin fallið af forsíðunni.

Ráðuneytið segist vilja árétta að aldrei hafi verið áhöld um hvenær vinnslu skýrslunnar lauk. Skýrt sé tekið fram að henni hafi verið skilað í september, en Bjarni Benediktsson hefur sætt ásökunum um að hafa setið á skýrslunni fram yfir alþingiskosningar. 

„Loks vísar ráðuneytið til þess að vanalegt að setja dagsetningu þess dags eða mánuðar þar sem viðkomandi rit eru birt, og því hefði verið réttast að á forsíðu hennar stæði janúar 2017.“


Tengdar fréttir

Benedikt um skýrsluna: Slök dómgreind og klúður

"Það er rosaleg skítalykt af þessu máli,“ segir þingmaður Pírata. Skýrsla um aflandseignir Íslendinga ekki birt fyrr en eftir kosningar. Formaður Samfylkingarinnar segir forkastanlegt að halda upplýsingum frá almenningi.

Bjarni segir að svör sín hafi verið ónákvæm

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir að svör sín um hvenær ráðuneyti sínu hefði borist skýrsla um eignir Íslendinga á aflandssvæðum hafi verið ónákvæm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×