Innlent

Ekið á mann í Árbænum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ökumaður bílsins ók í burtu og hefur ekki gefið sig fram.
Ökumaður bílsins ók í burtu og hefur ekki gefið sig fram. Vísir/Vilhelm
Karlmaður á fimmtugsaldri varð fyrir bíl í Hraunbæ í Árbænum í morgun en ökumaður bílsins ók í burtu og hefur ekki gefið sig fram.

Atvikið gerðist með þeim hætti að maðurinn var að ganga meðfram bíl sínum og hugðist setjast í ökumannssætið. Samkvæmt frásögn vitna kom dökk bifreið á mikilli ferð vestur Hraunbæ.

Bifreiðinni var ekið utan í manninn sem kastaðist við það á akbrautina. Ökumaður dökka bílsins ók rakleiðis á brott og hefur ekki gefið sig fram. Maðurinn sem varð fyrir bifreiðinni kom sér sjálfur á slysadeild og var hann nokkuð lemstraður að sögn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×