Innlent

Ekið á hjólreiðamann í Árbæ

Samúel Karl Ólason skrifar
Hjólreiðamaðurinn og farþegi í bílnum voru fluttir á slysadeild.
Hjólreiðamaðurinn og farþegi í bílnum voru fluttir á slysadeild. Vísir/Pjetur
Alvarlegt umferðarslys varð í Árbæ í morgun þegar ekið var á hjólreiðamann. Hann var fluttur mikið slasaður á slysadeild með sjúkrabíl samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Rannsóknardeild lögreglunnar er nú að vettvangi slyssins og unnið er að rannsókn þess.

Farþegi í bílnum, sem endaði á ljósastaur, var einnig fluttur á slysadeild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×