Innlent

Ekið á gangandi vegfarendur á Humarhátíð

Frá Humarhátíð í fyrra.
Frá Humarhátíð í fyrra. MYND/Galdur

Tvennt slasaðist á Humarhátíðinni á Höfn í Hornafirði fyrr í kvöld þegar tveir bílar skullu saman. Önnur bifreiðin kastaðist upp á gangstétt og á tvo gangandi vegfararendur sem áttu leið hjá. Fólkið verður flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur til nánari skoðunar.

Lögregla á Höfn segir í samtali við Vísi að betur hafi farið en á horfði í fyrstu og að fólkið, sem er gestkomandi í bænum vegna hátíðarinnar sé ekki mikið slasað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×