Innlent

Ekið á gangandi vegfaranda í Breiðholti

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Tildrög slyssins eru í rannsókn.
Tildrög slyssins eru í rannsókn. VÍSIR/STEFÁN
Ekið var á gangandi vegfaranda um klukkan 10 í morgun við Norðurfell í Breiðholti. Veginum var lokað um stund en hefur nú verið opnaður aftur að sögn Stefáns Jónssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Hann segir manninn sem ekið var á hafa verið með meðvitund og vel áttaðan sem sé jákvætt. Hann var þó fluttur með sjúkrabifreið á sjúkrahús til aðhlynningar. 

Tildrög slyssins eru í rannsókn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×