Lífið

Eitthvað fyrir alla á Menningarnótt

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
vísir/vilhelm
Menningarsinnar, barnafjölskyldur, þeir sem hafa lítið á milli handanna og þeir sem vilja njóta lífsins í botn geta allir skemmt sér vel á Menningarnótt. Fréttablaðið bjó til fjórar mismunandi leiðir að góðum degi í borginni.

Allt fyrir Menningarsinnann

Kaolin keramik Gallerí

11.00 – 22.00

Skólavörðustígur 22

Ratleikur fyrir börn og fullorðna

11.00 – 13.00

Gallerí Fold, Rauðarárstígur 14

Harpa Guided Tours: Behind the scenes

11.00 – 17.30

Harpa, Austurbakki 2

Improv Ísland Spunamaraþon

12.00 – 22.00

Þjóðleikhúskjallari

Improv Ísland stendur fyrir spuna­maraþoni þriðju Menningarnóttina í röð. Á hálftíma fresti verður áhorfendum hleypt inn og úr salnum. Dóra Jóhannsdóttir er listrænn stjórnandi hópsins.

Listasafn Íslands á Menningarnótt 2016

12.00 – 21.30

Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegur 7

Safarí – fjölskylduleiðsögn og könnunarleiðangur

13.00 – 14.00

Hafnarhús, Listasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 17

Kristján Jóhannsson og Geir Ólafsson syngja á Sólon Bistro

15.00 – 15.30

Sólon Bistro





Allt fyrir börnin

Ókeypis barnamyndataka

11.00 – 19.00

Gallerí Fold

Til fyrirmyndar – listasmiðja

12.00 – 14.00

Flókagata 24

Askur Yggdrasils: Völundarhús

12.00 – 22.00

Mýrargata, Vesturbugt, Grandi

Ef gengið er niður að Granda má þar finna undarlegt mannvirki úr viði sem virðist rísa upp úr steinlagðri jörðinni. Einn fullorðinn og barn fá aðgang á 2 mínútna fresti inn í völundarhús Asks Yggdrasils, þar sem má finna undarleg en heillandi rými, sem eru lauslega byggð á norrænni goðafræði.

Búningar og myndatökur

13.00 – 18.00

Ljósmyndasafn Reykjavíkur

Bátasmiðja

13.00 – 15.00

Sjóminjasafnið í Reykjavík, Grandagarður 8

 

Skátaþrautir

13.30 – 17.10

Hljómskálagarðurinn



Ungversk upplifun fyrir alla fjölskylduna

13.30 – 16.30

Harpa





Djammarinn

Krás – götumatarhátíð

13.00 – 18.00

Fógetagarðurinn, Kirkjustræti.

Mindfuckness leikhúsjóga

15.30 – 16.30

Sólir, Fiskislóð 53

Karnival á Klapparstíg

16.00 – 23.00

Á horni Hverfisgötu og Klapparstígs

„Hugmyndin kviknaði þegar ég átti stórafmæli, í stað þess að halda hefðbundna afmælisveislu, þá ákvað ég í samvinnu við góða vini að slá upp heljarinnar götupartíi fyrir utan húsið hjá mér og öllum var boðið. Það má því segja að þetta sé afmælispartí sem fór úr böndunum,“ segir DJ Margeir, karnivalstjóri. Meðal tónlistarmanna sem fram koma eru Högni Egilsson, Unnsteinn Manuel og Sísý Ey.

Menningarnótt

16.00 – 23.00

Petersen-svíta og Gamla bíó

Hip hop hátíð Menningarnætur

18.00 – 23.00

Hjólastóla-diskórokk

19.00 – 21.00

Listasafn Reykjavíkur Tryggvagata 17



Tónaflóð Rásar 2

20.00 – 23.00

Arnarhóll

Uppistand með Ara Eldjárn

21.00 – 21.30

Þjóðminjasafn Íslands





Hinn Hagsýni

Kaffiboð hjá Neytendasamtökunum

13.30 – 18.00

Hverfisgata 105

Vöfflukaffi í Þingholtunum

14.00 – 16.00

Þingholtin

Knús í boði

14.00 – 15.00

Laugavegur 25

Velkomin í súkkulaðiskóla Omnom

14.00 – 14.45

Hólmaslóð 4, 101 Reykjavík

Komdu að húlla

15.00 – 16.00

Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgata 41

Garðpartý – 30 ára afmælistónleikar Bylgjunnar og Stöðvar 2

17.00 – 22.45

Hljómskálagarðurinn, við Hringbraut

Hljómsveitin Milkywhale býður í hvalaskoðunarferð

17.30 – 18.20

Special Tours – Báturinn Lilja, Ægisgarður 13

Popphljómsveitin Milkywhale ásamt hvalaskoðunarfyrirtækinu Special Tours efnir til tónleika um borð í hvalaskoðunarskipinu Lilju þar sem ætlunin er að finna þennan einmana hval og svara kalli hans. Klæðið ykkur vel þar sem það getur orðið kalt úti á sjó.

Ókeypis leiðsögn

18.00 – 22.00

Hafnarhús Listasafn Reykjavíkur, Tryggvagata 17






Fleiri fréttir

Sjá meira


×