Viðskipti innlent

Eitt mikilvægasta framlagið til hagfræði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Stærðfræðingurinn John Nash tók við Abelverðlaununum í Ósló þann 19. maí síðastliðinn. Hann og eiginkona hans létust í bílslysi á laugardaginn.
Stærðfræðingurinn John Nash tók við Abelverðlaununum í Ósló þann 19. maí síðastliðinn. Hann og eiginkona hans létust í bílslysi á laugardaginn. nordicphotos/afp
Einn kunnasti hugsuður samtímans, John Forbes Nash, lét lífið um helgina. Hann og eiginkona hans, Alicia, voru farþegar í leigubíl og mun leigubílstjórinn hafa misst stjórn á bifreiðinni og ekið á. Nash var lærður stærðfræðingur. Hann hlaut Nóbelsverðlaun í hagfræði árið 1994 fyrir jafnvægiskenningu sína og Abelverðlaunin í stærðfræði fyrir einungis örfáum dögum.

Nash lauk doktorsverkefni sínu við Princeton-háskóla þegar hann var einungis 21 árs. Grunninn að leikjafræði Nash byggði hann á kenningum Johns von Neumann. Leikjafræðin varð síðar einn af hornsteinum hagfræðinnar og raunar þekkt í sálfræði og fleiri félagsvísindagreinum.

Financial Times segir að eftir að Nash setti kenningu sína fram hafi hagfræðingar hætt að setja fram líkön þar sem gert er ráð fyrir að fullkomin samkeppni ríki á markaði og byrjað að teikna líkön þar sem sérhver aðili þarf að taka tillit til samkeppnisaðilanna.

Roger Myerson, sem sjálfur er Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði, segir að jafnvægiskenning Nash hafi verið jafn mikilvæg fyrir félagsvísindin og uppgötvun James Watson og Francis Crick á DNA var fyrir líftæknivísindin. „Þetta var eitt mikilvægasta framlag í sögu hagfræðinnar,“ hefur Financial Times eftir Myerson.

Nash var fæddur þann 13. júní 1928 í Bluefield í Vestur-Virginíu. Eftir að hann lauk doktorsgráðu sinni hóf hann störf hjá Massachusetts Institute of Technology (MIT). Þar hitti hann Aliciu frá El Salvador, með þeim tókust ástir og þau giftu sig. Þegar Nash greindist svo með geðklofa árið 1959 varð Alicia hans helsta stoð í lífinu. Ofsóknaræði og ranghugmyndir sóttu sífellt meira á hann og lagðist hann ítrekað á spítala. Hann hætti að vinna og hegðun hans varð æ skringilegri.

Vegna veikinda urðu samskipti þeirra hjóna erfiðari og þau skildu árið 1963 en tóku saman aftur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×