Evrópumeistaramót karla í knattspyrnu hefst í næstu viku. Evrópumeistaramót kvenna verður á næsta ári. Í daglegu tali er karlamótið þó oftast einfaldlega kallað „EM" en kvennamótið „EM kvenna", ef það er yfirhöfuð kallað nokkuð. Oftast láta menn eins og síðarnefnda mótið sé varla til.
Svo djúpt ristir þetta, að jafnvel femínistavefurinn knúz.is talar um „Evrópumeistarakeppnina í knattspyrnu 2012" í opnu bréfi til RÚV. Þar er Sjónvarpið hvatt til að fá fleiri konur til að tala um fótbolta í tengslum við mótið, sem er fínt sjónarmið í sjálfu sér, en enn æskilegra væri að sjá þær á vellinum einnig. Mig dreymir um eitt EM, með karla- og kvennakeppni á sama tíma.
Kvenna-Wimbledon? Hin aðskildu karla- og kvennamót skemma fyrir konum. Best launaði fótboltakarl heims, Argentínumaðurinn Lionel Messi, fær 43,5 milljónir Bandaríkjadollara á ári fyrir iðju sína. Hinum megin kynjalínunnar er brasilíska knattspyrnukonan Marta sem fyrir hálfu öðru ári skrifaði undir samning upp á hálfa milljón í bandarísku kvennadeildinni (sem nú er hætt). Sú upphæð hefði sem sagt dugað fyrir fjögurra daga samningi við Lionel Messi. Árslaun bestu knattspyrnukonu duga því til að borga besta knattspyrnukarli fyrir einn leik.
Í tennis er staðan önnur. Samkvæmt tímaritinu Forbes fær Roger Federer 47 milljónir dollara á ári fyrir að sveifla spaða, meðan Maria Sharapova fær 24,2 milljónir. Þetta er vissulega enn nokkur munur en samt margfalt skárra en í knattspyrnunni. Raunar er það svo að af tíu best launuðu íþróttakonum heims eru sex tenniskonur. Ætli stærsti hluti skýringarinnar liggi ekki einmitt í því að tenniskonur spila á sömu mótum og karlar og njóta því svipaðrar athygli og þeir. Til allrar hamingju datt engum í hug að búa til sérstakt Kvenna-Wimbledon-mót.
Þetta virðist vera regla: Þar sem mótin eru sameiginleg eiga íþróttakonur betri möguleika á að fá athygli. Skíðakonur, sundkonur, frjálsíþróttakonur og fimleikakonur eru líklegri til að ná svipuðum tekjum og karlar. Þær konur sem spila handbolta, fótbolta eða körfubolta, þurfa sífellt að berjast fyrir athygli.
Ættu „Kvennaólympíuleikar í Gautaborg 2013" mikinn séns á að slá áhorfsmet? Varla. Auðvitað var það hárrétt frá öllum sjónarhornum að gefa konum færi á að keppa á Ólympíumóti með áratugasögu frekar en búa til eitthvert nýtt mót, bara fyrir þær. Sömu ákvörðun hefði átt að taka í knattspyrnu, en fyrst það var ekki gert, þarf að leiðrétta þau mistök.
Með sameiginlegu móti myndi allt vinnast, kvennakeppnin fengi verðskuldaðan sjónvarpstíma og auðveldara væri að fylla vellina. Nú stendur reyndar til að fjölga liðunum á EM karla upp í 24 árið 2016. Það er leitt að það tækifæri hafi ekki frekar verið notað til að bæta við kvennakeppni. Það breytir þó ekki því að markmiðið til langs tíma ætti að vera að öll Evrópu- og heimsmeistaramót í liðaíþróttum væru ætluð báðum kynjum.
Að sannfæra karlaklúbb Líklegast þyrfti heilmikið puð til að koma þessu til leiðar. FIFA og UEFA eru nefnilega karlaklúbbar í nokkuð beinni merkingu þess orðs. Í sextán manna stjórn UEFA eru sextán karlar. Í seinustu viku var kona loksins kosin í stjórn FIFA. Hún er sú fyrsta í 108 ára sögu sambandsins. Þessar skekkjur hafa áhrif. Það er þannig sífellt verið að fjölga liðum í karlakeppnum en fjölda liða í kvennakeppnunum haldið niðri með þeirri afsökun að kvennaboltinn sé „ekki búinn að ná nógu miklum gæðum". Þessar bullskýringar hafa þau áhrif að stelpur sem spila fótbolta hafa síðri möguleika á að komast í úrslitakeppni stórmóts en strákar og þær sem þangað komast fá minni athygli en þeir.
Hugmyndum sem þessum þarf fyrst að vinna fylgi innanlands og gera þær að opinberri stefnu íslenskra íþróttasambanda á borð við KSÍ. Næst þarf að vinna þeim fylgi í útlöndum, og líklegast best að byrja í norðurhluta Evrópu, þar sem kvennaknattspyrna stendur hvað best. Slíkar nýjungar gætu vissulega mætt andstöðu, en ef jafna á hlut karla og kvenna í knattspyrnuheiminum er líklegast engin önnur leið vænlegri til árangurs.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar er afdráttarlaus kafli um húsvernd, áreiðanlega sá fyrsti sem ratar inn í stjórnarsáttmála hér á landi. Kaflinn er svona:
Meira
Með nýrri ríkisstjórn verða pólitísk umskipti og landsstjórnin fær nýtt yfirbragð. Um leið verða afgerandi straumhvörf þegar ný kynslóð stjórnmálamanna stormar inn í Stjórnarráðið.
Meira
Fréttablaðið sagði í lok marz frá miklum áhyggjum heilbrigðisnefnda sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og framkvæmdastjórnar um vatnsvernd á svæðinu af áformum um aukin umsvif á Bláfjallasvæðinu.
Meira
Kartöflubóndi ætlar að prófa nýja ræktunaraðferð. Nýja aðferðin er 70% dýrari en sú gamla. Kartöflurnar munu vera lengur að vaxa en þær eiga að vera gæðameiri og þar með dýrari fyrir vikið. Bóndinn er...
Meira
Margt í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar bendir til að hún geti staðið undir því markmiði sínu að hefja "nýja sókn í þágu lands og þjóðar“.
Meira
Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra...
Meira
Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand...
Meira
Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur...
Meira
Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ...
Meira
Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því.
Meira
Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí...
Meira
Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að.
Meira
Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums...
Meira
Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna.
Meira
Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ...
Meira
Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a...
Meira
Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga.
Meira
Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek...
Meira
Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik...
Meira
Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ...
Meira
Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum...
Meira