Gagnrýni

Eitt besta gríndúó sögunnar

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Channing og Jonah eru hreint út sagt frábærir.
Channing og Jonah eru hreint út sagt frábærir.
Kvikmynd 

22 Jump Street

Leikstjóri: Phil Lord og Christopher Miller



Ég var yfir mig hrifin af 21 Jump Street á sínum tíma og því bar ég miklar væntingar til framhaldsmyndarinnar.

Það besta við 22 Jump Street er að aðstandendur hennar eru ólmir í að láta áhorfendur vita að um framhaldsmynd sé að ræða. Því detta þeir ekki í þá gryfju að reyna að toppa fyrri myndina heldur gera allt „nákvæmlega eins“ eins og sagt er margoft í myndinni.



Channing Tatum
og Jonah Hill snúa aftur í sín hlutverk og eru þeir búnir að skipa sér á lista yfir bestu gríndúó sögunnar. Þeim fer grínleikur svo listilega vel úr hendi að það er ekki annað hægt en að emja úr hlátri.

Það kemur lítið á óvart í myndinni – nema sú risastóra staðreynd að hún er alveg jafn góð, jafnvel betri en fyrri myndin. 

Niðurstaða:

Óheyrilega fyndin mynd sem dettur ekki í framahaldsmyndagryfjuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×