Erlent

Eiríkur um Brexit-dóminn: „Þetta er alger „game-changer““

Atli Ísleifsson skrifar
Dómur High Court þýðir að breska ríkisstjórnin getur ekki virkjað 50. greinina upp á sitt einsdæmi.
Dómur High Court þýðir að breska ríkisstjórnin getur ekki virkjað 50. greinina upp á sitt einsdæmi. Vísir/AFP
„Þetta er alger game-changer í málinu,“ segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um dóm High Court í Englandi í dag um að breska þingið verði að greiða atkvæði um hvort Bretlandsstjórn virki 50. grein Lissabon-sáttmála ESB þannig að formlega megi hefja úrsagnarferli Bretlands úr ESB.

Dómurinn þýðir að breska ríkisstjórnin getur ekki virkjað 50. greinina upp á sitt einsdæmi.

Eiríkur segir að það sem mestu máli skipti í málinu sé að breska þingið er fullvaldurinn – eða „the sovereign“. Þetta sé öðruvísi kerfi en við þekkjum. „Fullveldið í Bretlandi er ekki í höndum þjóðarinnar. Það er ekki í höndum drottningar. Það er ekki í höndum ríkisstjórnar. Það er í höndum þingsins. Það er æðsta vald Bretlands.“

Deilt hefur verið um hvort að ríkisstjórnin geti afturkallað aðild Bretlands að ESB, virkjað 50. grein Lissabon-sáttmálans eða hvort þingið þurfi að hafa aðkomu að því. „Þetta var High Court sem úrskurðar að þingið þurfi að afgreiða þetta. Þessu verður nú áfrýjað til æðra dómsstigs, en það eru nú meiri líkur en minni að úrskurðurinn verði staðfestur.“

Ekki háðir niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar

Eiríkur segir að verði þetta niðurstaðan verði forsætisráðherrann Theresa May að leggja fyrir þingið tillögu um að beita þessu úrsagnarákvæðinu, 50. greininni.

„Þingið hefur fullvalda rétt til að taka sjálfstæða ákvörðun, burtséð frá niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þingmenn verða í vanda staddir. Eiga þeir að fylgja eigin sannfæringu í málinu eða forskrift þjóðarinnar? Ég hugsa að mjög margir þingmenn – Bretar búa við einmenningskjördæmi – munu skoða niðurstöðuna í sínu kjördæminu. Það gæti verið lagt til grundvallar. Það er engan veginn ljóst – nema síður sé – hvort það sé meirihluti á þinginu fyrir úrsögninni.“

Brexit í uppnámi

May var sjálf búin að segja að breska stjórnin myndi virkja 50. greinina fyrir lok mars á næsta ári. Myndi þá hefjast tveggja ára samningaferli sem lyki með formlegri úrsögn Bretlands úr ESB. „Það er í uppnámi. Við vitum í raun ekki hvað gerist næst.“

51,9 prósent Breta greiddu atkvæði með úrsögn í þjóðaratkvæðagreiðslunni í júní, en 48,1 prósent kusu með áframhaldandi aðild.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×