Innlent

Eiríkur svarar framsóknarmönnum fullum hálsi

Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við Bifröst segir rangt að hann hafi í grein sinni í Fréttatímanum á dögunum "gefið sterklega í skyn að Framsóknarflokkurinn tengist hatursfullri öfgaþjóðernisstefnu," eins og þingflokkur Framsóknarmanna heldur fram í yfirlýsingu en framsóknarmenn hafa fordæmt skrif Eiríks. Eiríkur hefur sjálfur sent frá sér yfirlýsingu og þar bendir hann á að umfjöllun sín um Framsóknarflokkinn hafi orðrétt verið á þessa leið:



„Í allra síðustu tíð hefur Framsóknarflokkurinn svo eilítið farið að daðra við þjóðernisstefnuna. Breytingar á merki flokksins vísar til að mynda í klassísk fasísk minni og áhersla hefur verið á að sýna þjóðleg gildi á fundum flokksins, svo sem glímusýningu undir blaktandi þjóðfánanum. Orðræða sumra þingmanna hefur í auknum mæli einkennst af hollustu við þjóðernið. Enn þó er þó ekki ljóst hvort flokkurinn ætli sér að sækja enn lengra inn í þetta mengi." (Fréttatíminn 04.11.2011, sjá bls 46).

Eiríkur segir að þetta sé sitt mat á málflutningi flokksins og því standi hann við hvert orð. „En í þeim er felst enginn annar dómur öfugt við þá túlkun sem þingflokkur Framsóknarflokksins leggur í orð mín í yfirlýsingu sinni. Ég ber að mörgu leyti djúpa virðingu fyrir sögu og stefnu Framsóknarflokksins sem og fyrir málflutningi margra framsóknarmanna. Mér finnst þó að þingflokkur framsóknarmanna eigi að geta þolað það að um hann sé fjallað án mikillar tæpitungu á almennum vettvangi."

„Því má hér við bæta að ég hef í áraraðir rannsakað þjóðernisumræðu, hérlendis og erlendis - svo sem lesa má um í doktorsritgerð minni og bókinni Sjálfstæð þjóð - trylltur skríll og landráðalýður sem kom út hjá Veröld í vor," segir Eríkur ennfremur. Hvað varðar framsetningu og myndskreitingu með greininni segist hann vísa á Fréttatímann, Eiríku hafi ekki komið sjálfur að myndavali eða útlitsteikningu blaðsins.

„Og mætti ég svo kannski í fyllstu vinsemd spyrja hér í lokin hvað átt er við með þessari setningu í yfirlýsingu framsóknarmanna: „Óásættanlegt er að dósent við Háskólann á Bifröst skrifi á þennan hátt í nafni skólans." Hvað nákvæmlega á Háskólinn á Bifröst að gera í því? Er hér á ferðinni tilraun til þöggunar? Jafnvel hótun?," spyr hann að lokum.


Tengdar fréttir

Framsóknarflokkurinn fordæmir skrif Eiríks Bergmanns

Þingflokkur Framsóknarflokksins fordæmir umfjöllun Eiríks Bergmanns Einarssonar um Framsóknarflokkinn sem birt var í Fréttatímanum um síðustu helgi. Í yfirlýsingu sem Framsóknarflokkurinn hefur sent frá sér segir að umfjöllunin sé villandi og meiðandi. Eiríkur fjalli þar um ýmsar þjóðernisöfgahreyfingar og blandi Framsóknaflokknum í þá umræðu með afar undarlegum hætti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×