Fótbolti

Einstök fegurð minningargarðsins í Volgograd | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson í Volgograd skrifar
Móðurjörðin kallar alla gönguna. Útsýnið til hennar breytist og fagurt frá öllum hornum.
Móðurjörðin kallar alla gönguna. Útsýnið til hennar breytist og fagurt frá öllum hornum. vísir/vilhelm
Volgograd, áður Stalingrad, er ein sögufrægasta borg heims og minningargarðurinn um orrustuna í borginni er einstakur.

Baráttan um Stalingrad var stærsta og blóðugasta orrustan í síðari heimsstyrjöldinni. Orrustan hófst þann 23. ágúst en lauk ekki formlega fyrr en 2. febrúar 1943. Í valnum lágu hátt í tvær milljónir manna. Heimamenn í meirihluta.

Heimamenn unnu þó orrustuna og sá sigur var snúningspunktur í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir hana var byrjað að sækja að nasistum.

Þessi hluti leiðarinnar er með tónlist og miklum byssulátum. Þarna er búið að skera í bergið myndir af mönnum í barátta um borgina.vísir/vilhelm
Árið 1967 var opnaður minningargarður um orrustuna. Þar er í aðalhlutverki styttan sem kölluð er Móðurjörðin kallar. Móðir Rússland og hún vakir yfir borginni á hæsta punktinum.

Hún er 85 metrar að hæð og var stærsta stytta heims er hún var reist. Hún er í þriðja sæti núna en þetta er engu að síður stærsta stytta heims af konu. Bara sverðið er 33 metrar og hún vegur rúm átta tonn.

Gangan að styttunni hefst nokkuð langt frá og upp tröppur. Alls eru 200 tröppur á leiðinni upp að styttunni. Ein trappa fyrir hvern dag sem barist var í borginni.

Er við komum inn í minningarhofið voru sveittir hermenn að marsera um hofið. Á veggjunum má sjá nöfn þeirra heimamanna sem féllu.vísir/vilhelm
Svo er gengið fram hjá hverju glæsiverkinu á fætur öðru. Einstakar styttur sem minna á átökin. Tónlist spiluð undir og einnig má heyra byssuskot. Allt til að gera upplifunina sterkari. Rétt áður en farið er lokaspölinn upp að styttunni er farið í gegnum minningarhof. Þar standa hermenn í steikjandi hita án þess að hreyfa sig. Félagar þeirra koma reglulega og þurrka af þeim svitann og laga til jakkana þeirra.

Á veggjunum eru svo nöfn allra Rússanna sem létust í orrustunni. Yfir milljón nöfn. Magnþrunginn staður.

Svo þegar komið er alveg upp á hæðina er útsýni yfir alla borgina. Á þessari hæð var mikið barist og jarðneskar leifar margra liggja undir grasi hæðarinnar sem var svo mikilvæg í þessum bardaga.

Einn fjögurra hermanna í hofinu sem standa klukkutímum saman í hitanum án þess að hreyfa sig.vísir/vilhelm
Ofanritaður er mikill áhugamaður um síðari heimsstyrjöldina og þá sérstaklega þessa orrustu. Það er erfitt að lýsa með orðum tilfinningunum sem bærast með manni á þessari göngu. Þessi minningargarður er einn fallegasti staður sem ég hef komið á og tilfinningarnar sterkar sem bærast í manni á slíkum söguslóðum.

Ef einhver á möguleika á því að koma hingað þá má ekki sleppa þessari göngu. Hún er lík engri annarri og skilur mikið eftir sig. Einstakur minningargarður um einn hörmulegasta atburð mannkynssögunnar.

Hofið er opið að ofan. Á einum stað í göngunni upp hofið má sjá Móðurina rísa þar fyrir ofan.vísir/vilhelm
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari fór í þennan einstaka göngutúr með mér og myndaði fegurð garðsins.

Vísir er með öflugt teymi í Rússlandi sem verður með ítarlegan fréttaflutning af íslenska liðinu á HM. Fylgist með á samfélagsmiðlum okkar - á Facebook, Twitter og Instagram.

Hermaður þurrkar svitann af félaga sínum sem var búinn að standa lengi á versta stað. Beint gegnt sólu. Félaginn lagaði líka jakkann hans og peppaði hann svo áfram. Mögnuð sjón.vísir/vilhelm
Á þessum stað eru nokkrar styttur sem sýna hermenn bjarga særðum félaga sínum. Við hliðina er stór laug.vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
Þegar komið er úr hofinu blasir Móðirin við. Glæsileg og tignarleg. Fólkið upp á hæðinni er eins og maurar við hlið hennar.vísir/vilhelm

Tengdar fréttir

Króatar munu hvíla lykilmenn gegn Íslandi

Króatía er búið að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit á HM í Rússlandi þrátt fyrir að eiga eftir að leika einn leik í riðlinum, einmitt gegn Íslendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×