Lífið

Einstök auglýsing tekin upp á Íslandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Auglýsingin er rosaleg landkynning.
Auglýsingin er rosaleg landkynning. vísir/truenorth
Framleiðslufyrirtækið True North vann á dögunum auglýsingu fyrir American Express og það i samstarfi við MJZ í Bandaríkjunum.

Auglýsingin var tekin upp á Íslandi og aðallega í Reykjavík og á Suðurlandi. Inntak auglýsingarinnar er hvað sé hægt að upplifa á Íslandi á einum sólahring.

Pei Ketron fer með aðalhlutverkið í auglýsingunni en hún er ein þekktasta Instagram stjarnan í heiminum. Hún ferðast um heiminn og deilir fallegum myndum á Instagraminu sínu.

Auglýsingin verður sýnd um allan heim en hana má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×