Innlent

Einstakt samband fjögurra ára stúlku og Gaums

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Gaumur tekur mikið tillit til Svölu.
Gaumur tekur mikið tillit til Svölu. Vísir/Magnús Hlynur Hreiðarsson
Einstakt samband  hefur myndast á milli fjögurra ára stelpu á Selfossi og Gaums, sem er einn hæsti dæmdi stóðhestur landsins. Stelpan kembir honum, hreinsar úr hófunum og fer á bak á stóðhestinum. Kötturinn á bænum fer líka með stelpunni á hestbak.

Á bænum Grænhóli í Ölfusi er rekið myndarlegt hrossaræktarbú en þar búa afi og amma Svölu Bjarkar. Svala býr hins vegar með mömmu sinni og pabba á Selfossi þar sem hún er í leikskóla. Svala Björk sem er ný orðin fjögurra ára er prinsessan á bænum því þar hefur hún alist upp í kringum hestana. Stóðhesturinn Gaumur er hennar besti vinur. Þegar það er búið að ná í Gaum inn í stíu sér Svala Björk um að kemba honum og hún hreinsar líka alltaf úr hófunum. Eftir það teymir hún stóðhestinn inn í reiðhöll.

„Hann er með heiðursverðlaun þessi hestur og er frábær gæðingur með níu núll fimm fyrir hæfileika þannig að hún valdi bara það besta í húsinu. Hún fær að gera þetta á sínum hraða, ef hún vill fara á bak þá fær hún að fara á bak þegar það er tími. Auðvitað er mikilvægt að börn umgangist dýr og að þau læri að umgangast dýr. Þau þroskast mikið á því og fá ábyrgðartilfinningu,“ segir Þórdís Erla, móðir Svölu.

Þórdís Erla segir Gaum nánast mennskan því hann er svo góður við Svölu og tekur mikið tillit til hennar.

„Hún er dugleg og hefur áhuga og það kviknar þar, “ segir Þórdís þegar hún er spurð hvort Svala Björk sé efnileg í hestamennskunni.

Þegar reiðtúrnum er lokið og Gaumur kominn aftur inn í stíuna sína fær Svala að gefa honum fóðurbætir með þökk fyrir reiðtúrinn og samvinnuna í  dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×