Glamour

Einstaklega fjölbreyttur rauður dregill á Glamour verðlaununum

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Það var mikið um dýrðir í Los Angeles í gærkvöldi þegar rauða dreglinum var rúllað út að því tilefni að bandaríska útgáfa Glamour hélt Women of the Year-verðlaunin. 

Verðlaunin eru gefin til kvenna sem hafa staðið upp á árinu fyrir vinnu sína og störf en að þessu sinni var einn karl á lista líka, en tónlistarmaðurinn Bono hlaut verðlaun sem karl ársins. Gwen Stefani, Simone Biles, Ashley Graham og Christine Lagarde voru meðal þeirra kvenna sem voru verðlaunaðar í gærkvöldi. 

Nýafstaðnar forsetakosningar í Bandaríkjunum settu sinn svip á hátíðina en Hillary Clinton fékk sérstaka hyllingu hjá gestum. 

Gestir skörtuðu sínu fínasta pússi í tilefni dagsins og rauði dregilinn óvenju fjölbreyttur. 

Cindi Leive, ritstjóri Glamour, Lena Dunham og Anna Wintour klæddust allar rauðu.
Ashley Graham, Cara Delevingne og Amber Hearst stukku allar í blúnduna í tilefni dagsins.
Tracee Ellis Ross og Kat Graham í svipuðum kjólum.
Fyrirsætan Chanel Iman og Ibtihaj Muhammad, skylmingarkona mættu báðar í pallíettukjólum.
Jenna Tatum, Simone Biles og Christine Lagarde.
Nýafstaðnar forsetakosningar vestanhafs settu sinn svip á hátíðina og þessi sendi skýr skilaboð.
Gwen Stefani.





×