Leikjavísir

Einsleit bylting

Samúel Karl Ólason skrifar
Hinn hljóðláti Ethan Brady þarf að bjarga Philadelphia úr klóm tækniþróaðs innrásarhers.
Hinn hljóðláti Ethan Brady þarf að bjarga Philadelphia úr klóm tækniþróaðs innrásarhers.
Árið er 2029 og tæknilega framúrskarandi Norður-Kórea hefur hertekið Bandaríkin. Íbúar eru beittir miklu harðræði og innrársarherinn arðrænir Bandaríkin hægt og rólega. Þeir sem mótmæla eru teknir af lífi. Íbúar Philadelphia eru þó orðnir þreyttir á þessu ástandi og ætla þau sér að berjast af fullum krafti.

Skotleikir sem þessir, þar sem spilarar eru settir í hlutverk fólks sem berst gegn ofurefli eru orðnir frekar algengir og í grunninn er Homefront: The Revolution fínasti skotleikur. Leikurinn reynir að fanga stemninguna úr byltingarmyndinni Red Dawn en best tekst framleiðendum Homefront til með sköpun söguheimsins.

Leiknum er skipt niður í tvenns konar opin svæði. Annars vegar svæði þar sem bardagar geysa og hins vegar byggð svæði þar sem draga þarf íbúana inn í baráttuna um Philadelphi. Andrúmsloft byggðra svæða er mjög vel heppnað. Íbúar Philadelphia, sem ekki starfa með innrásarhernum búa nánast í flóttamannabúðum.

Spilunin HTR er nokkuð skemmtileg í fyrstu en hún verður einsleit og sagan er varla til staðar. Söguhetjan Ethan Brady segir ekki eitt einasta orð og virðist hann sífellt vera að fá sama verkefnið frá æðstu toppum uppreisnarinnar. Þau fela í sér að Brady þarf að fara þangað og drepa þennan og hinn og jafnvel stundum sprengja þetta og hitt. Undirritaður hafði gaman af vopnakerfi leiksins þar sem hægt er að breyta byssum og byggja þær upp eftir áherslum spilara.

Þá er hægt að safna hlutum í umhverfi leiksins til þess að byggja fjarstýrðar sprengjur og önnur vopn sem hægt er að beita gegn Kóreumönnum.

Tæknilegir gallar eru á leiknum en þeir eru ekki margir sem ekki er búið að laga. Þrátt fyrir skemmtilegt andrúmsloft og öðruvísi spilun en margir aðrir leikir bjóða upp á mistekst framleiðendum Homefront að ná leiknum á þær hæðir sem til stóð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×