Einsdæmi í íslenskri réttarsögu Jóhannes Stefánsson skrifar 16. maí 2013 11:34 Gestur Jónsson, lögmaður Hauks Þórs Haraldssonar Mynd/ GVA
Mál Hauks Þórs Haraldssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum, er einsdæmi í íslenskri réttarsögu segir Gestur Jónsson, lögmaður Hauks. Málið hefur þrisvar verið flutt fyrir héraðsdómi og þrisvar fyrir Hæstarétti. Í tvö skipti hefur Hæstiréttur ómerkt héraðsdóminn en Haukur bíður nú dómsniðurstöðu Hæstaréttar í þriðja sinn, en hann var sakfelldur fyrir fjárdrátt með þriðja héraðsdóminum. „Þetta er í sjötta skiptið sem málið er flutt," segir Gestur. „Það er búið að fara í gegnum þrjár heilar aðalmeðferðir í héraði sem þýðir að í hvert skipti er nýr dómari sem tekur við málinu. Það þýðir að það þarf að byrja á reit eitt í hvert einasta skipti. Vitnin, sem eru um 20 talsins, hafa gefið skýrslur í öll skiptin og Haukur hefur sjálfur þurft að mæta fyrir dóm í þrjú skipti og gefa skýrslu öll skiptin." Gestur segir ekki óþekkt að mál fari oftar en einu sinni fyrir héraðsdóm, en málið sé ólíkt öðrum slíkum málum þar sem nýr dómari hafi tekið við málinu í hvert skipti í tilfelli Hauks. „Í þessu tilviki hefur það gerst sem aldrei hefur gerst áður og ég sjálfur hélt að gæti ekki gerst að sami maður hefur orðið að þola það að þurfa að fara í gegnum málsmeðferð fyrir þremur mismunandi héraðsdómurum," segir Gestur.Ítrekuð mistökdómstóla og Haukur krefst frávísunar Gestur segir um feril málsins: „Í fyrsta skipti var dómurinn ómerktur vegna þess að Hæstiréttur taldi héraðsdóm ekki hafa tekið tillit til allra gagna í málinu. Í næstu umferð ómerkti Hæstiréttur héraðsdóminn aftur vegna þess að samkvæmt lögum þurfa þrír dómarar að sitja málið en einungis einn dómari hafi verið í málinu. Svo í þriðja skiptið var dæmt og það er sú málsmeðferð sem var til umfjöllunar hjá Hæstarétti í gær." Ljóst er að mistök hafa verið gerð í málinu fyrir héraðsdómi, en í hinum þriðja og nýjasta héraðsdómi segir meðal annars: „Ákæra verður á engan hátt kennt um að málið hafi komið þrisvar sinnum til meðferðar í héraði og er því sanngjarnt að dæma hann til að greiða þriðjung málsvarnarlaunanna, en að öðru leyti skulu þau greidd úr ríkissjóði. Gestur segir að Haukur hafi krafist þess fyrir Hæstarétti í gær að málinu yrði vísað frá dómi, enda bryti málsmeðferðin gegn þeim réttindum sem menn eiga að njóta hér á landi.Bíða og sjá hvað setur Aðspurður að því hvort Haukur hafi íhugað möguleikann á því að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu segir Gestur: „Við bíðum niðurstöðu Hæstaréttar áður en við förum að ræða það."
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira