Körfubolti

Eins stigs taps Jóns Arnórs í Berlín

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór skýtur að körfunni í kvöld.
Jón Arnór skýtur að körfunni í kvöld. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson skoraði þrjú stig er lið hans, Unicaja Malaga, tapaði með minnsta mun fyrir Alba Berlín í Þýskalandi í kvöld, 79-78.

Unicaja hefði tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum með sigri í kvöld en liðið hefur unnið fjóra af sjö leikjum sínum í kepppninni til þessa.

CSKA Moskva er efst í riðlinum með fullt hús stiga en liðið vann öruggan sigur Meccabi Tel Aviv en síðarnefnda deilir öðru sæti riðilsins með Unicaja Malaga.

Jón Arnór og félagar eiga því enn góðan möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslitin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×