Handbolti

Eins og leikmenn hafi ekki trú á því sem þjálfarinn er að gera

Guðjón Guðmundsson og Kristján Arason krufu leik íslenska liðsins í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport.

„Það þarf að skoða aðdraganda mótsins og heildarmyndina. Hvernig liðið undirbjó sig fyrir mótið og síðan leikina í undirbúningnum. Við getum ekki alltaf afsakað okkur og sagt að við höfum farið óvart inn á mótið og þjálfarinn hafði lítinn tíma," sagði Guðjón Guðmundsson í HM-kvöldi á Stöð 2 Sport.

„Það er eins og leikmenn hafi enga trú á því sem þjálfarinn er að gera. Ég get ekki séð betur. Auðvitað er Aron Kristjánsson frábær þjálfari með gott lið í Danmörku. Það er ekki að sjá liðið hafi neina trú á því sem lagt er upp með fyrir leiki. Leikur liðsins hlýtur að endurspegla það sem verið er að gera á æfingum. Ég trúi ekki öðru."

Menn velta nú fyrir sér framtíð Arons sem landsliðsþjálfari.

„Ég vil meina að undirbúningurinn hafi verið skammur og Aron hafði ekki leiki í haust til þess að prófa eitthvað nýtt. Hann reyndi 5/1 vörn rétt fyrir mót og Aroni er vorkunn," sagði Kristján Arason.

„Það sem kom mér á óvart með leikmennina er hvað þeir virkuðu þungir. Var spilað of þétt fyrir mót? Hvað var svona mikið að? Við spiluðum ágætlega gegn Frökkum og Egyptum en síðan virkaði liðið mjög þungt. Við þurfum svör frá strákunum af hverju þeir virkuðu svona þungir."

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir

Snorri: Mótið er vonbrigði

Snorri Steinn Guðjónsson var svekktur með tapið gegn Dönum. Hann segir að liðið hafi ekki spilað vel í mótinu og vonar að Íslendingur verði heimsmeistari.

Björgvin Páll: Súrt að falla úr leik á móti Dönum

Björgvin Páll Gústavsson varði tuttugu skot á móti Dönum í kvöld og var enn einu sinni besti leikmaður mótsins. Björgvin Páll var veikur í gær og um tíma óvíst hvort hann gæti spilað.

Aron Kristjáns: Erfitt þegar Landin er í stuði

Aron Kristjánsson segir að sigur Dana á Íslendingum hafi verið sanngjarn. Hann vill ekki svara því hvort hann myndi velja sömu leikmenn ef hann stæði frammi fyrir því að velja liðið núna.

Guðjón Valur: Mættum sterkara liði

Fyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk úr ellefu skotum gegn Dönum og var sá eini í liðinu sem lék allan leikinn. Var það áfall að komast ekki lengra í keppninni en í 16 liða úrslit?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×