Leikjavísir

Eins og erfitt kvöld úti á lífinu

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Gauti lendir mikið í því að fólk rappar í eyrað á honum og segir honum í trúnaði eitt og annað sem hann vill ekki vita.
Gauti lendir mikið í því að fólk rappar í eyrað á honum og segir honum í trúnaði eitt og annað sem hann vill ekki vita.
Emmsjé Gauti hefur í undirbúningi fyrir nýjustu plötuna sína 17. nóvember, sem kemur út eftir örfáa daga, látið búa til eftirmynd sína úr plasti, en hann lét föndra handa sér dótakall í stíl He-Man-fígúranna og nú síðast gaf hann út tölvuleik þar sem hann sjálfur fer með aðalhlutverkið.

Á vefsíðunni emmsje.is má finna tölvuleikinn og er þar bregður leikmaðurinn sér í hlutverk Gauta og markmiðið er að aðstoða hann við að komast á skemmtistaðinn Prikið þar sem hann á að halda tónleika.

En hans bíða ýmsar hindranir á leiðinni – til að mynda er drukkinn lýðurinn sífellt að stoppa Gauta af og draga hann á trúnó, en það er mjög mikilvægt annaðhvort að stökkva yfir þessa erfiðu djammara eða hreinlega stökkva ofan á þá og losna þar með við þá út úr myndinni. Gauti villist meðal annars inn á B5 en þar þarf hann að passa sig á flöskuborðum og laganemum og lendir í ýmsum öðrum hremmingum.

Upphafsskjár leiksins gæti kveikt nostalgíu hjá einhverjum af gamla skólanum.
Leikurinn er í stíl tölvuleikja frá seinni hluta níunda áratugarins og fyrri hluta þess tíunda og hefur tónlist eftir Gauta verið sett í viðeigandi form og spilast undir meðan á leik stendur.

Hvernig kom til að þú ákvaðst að gera tölvuleik?

„Í raun og veru er þetta snjóbolti sem hefur stækkað og stækkað síðustu vikurnar. Í september tek ég þá ákvörðun að gefa út nýja plötu hjá útgáfufyrirtæki Priksins sem heitir Sticky plötuútgáfa. Geoffrey Skywalker kom með þá hugmynd að fá „Viktors Vintage“ sem sérhæfir sig í að gera retró-dótakalla til að gera eitt stykki Emmsjé Gautafígúru. Eftir það var tekin sú ákvörðun að vinna allt myndefni í þeim stíl sem kallinn er í.

Gauti staddur fyrir utan skemmtistaðinn B5 en hann vill stundum ramba þangað inn og festast.
Það er svo eitt kvöldið sem ég er að skoða internetið að ég rekst á tölvuleik eftir Skúla Óskarsson sem var hannaður í Gameboy-þema.

Ég hafði samband við hann og við skutum á milli okkar hugmyndum sem endaði með því að við ákváðum að gera tölvuleik saman. 

Þegar leið á ferlið ákváðum við að fara alla leið og fengum með okkur í lið fólk sem sá um „cutscenes“ eða milligrafík og tónlist fyrir leikinn en milligrafíkin var í höndum Örnu Beth og Ingi Már Úlfarsson, sem er partur af pródúsertíminu Reddlights, sá um hljóðvinnsluna.

Útkoman er frábær og það er búið að vera mjög skemmtilegt að vinna með þessum yndislega hópi.“

Það er að sjálfsögðu hægt að sveifla ljósakrónunum inn á Prikinu.
Margir hafa orð á því að leikurinn sé alveg fáránlega erfiður, er það viljandi gert?

„Þetta er í raun og veru bara í stíl við restina af eitís-tölvuleikjunum. Þeir litu oft út fyrir að vera auðveldir við fyrstu sýn en voru svo ótrúlega krefjandi.

Donkey Kong er mjög gott dæmi um það og þess má geta að það er uppáhalds arcade-leikurinn minn og það er hægt að spila hann á Fredda.“

Er atburðarásin í leiknum bara venjulegt kvöld úti á lífinu fyrir þig?

„Það má alveg segja það. Ég fer ekki út á skemmtanalífið án þess að einhver vilji fara á trúnó við mig eða rappa í eyrað á mér. Svo held ég að það séu margir sem tengja við það að villast inn á B5 og festast á troðfullu dansgólfinu. Það getur verið fínt að detta inn á B5 en það getur líka verið algjört hell.

Mér líður langbest á Prikinu þegar ég fer út að skemmta mér. Hanga hjá DJ-borðinu á neðri hæðinni og horfa á dýragarðinn meðan ljósin sveiflast í takt við tónlistina,“ segir Gauti að lokum.


Tengdar fréttir

Íslendingar gera GameBoy leiki

Fimm íslendingar þátt í BGJAM keppninni hvar þeir keppast um hver býr til besta leikinn í GameBoy þema. Skúli Óskarsson er einn þeirra en hann hefur fiktað við tölvuleikjagerð í nokkur ár.

Æskudraumar Emmsjé Gauta rætast

Emmsjé Gauti hefur látið búa til eftirlíkingu af sjálfum sér sem He-man. Hann fetar þar í fótspor Birgittu Haukdal en kallinn verður þó ekki til sölu nema í takmörkuðu upplagi. Þetta gerir hann meðfram útgáfu á nýrri plötu, 17. nóvember, og tölvuleik.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×