Eins og að fleyta steinum á vatni og snerta yfirborð Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 24. nóvember 2016 13:30 Kristín og Unnur Dís voru í óðaönn að setja upp sýninguna í Bogasalnum þegar ljósmyndarann bar að. Þær eru báðar doktorar í mannfræði. Vísir/ Fréttablaðið/Anton Brink
Eins og nafn sýningarinnar ber vott um erum við að draga fram að Ísland hefur lengi verið tengt umheiminum. Í samtímanum ganga umræður oft út frá því að tengsl og flutningar milli ólíkra heimsálfa sé nýtt í sögunni. En við minnum á að þverþjóðleiki er gamalt fyrirbæri og Íslendingar, eins og aðrar þjóðir, hafa mótast út frá hugmyndafræðilegri þróun úti í hinum stóra heimi. Þeir hafa ekki verið eins einangraðir og oft er haldið fram,“ segir Kristín Loftsdóttir mannfræðingur um sýninguna Heimurinn í Íslandi - Ísland í heiminum, sem opnuð verður klukkan 15 í dag í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Kristín tekur fram að sýningin leitist við að bregða upp lifandi mynd af efninu. Hún samanstandi af textum, munum og myndum og meðal annars sögum einstaklinga. Unnur Dís tekur undir það og segir hana endurspegla hvernig fólksflutningar hafi verið hluti af sögu Íslands og hvernig Íslendingar hafi verið undir áhrifum annars staðar frá, hvað varði fjölbreytileika almennt. Dæmi eru tekin um búferlaflutninga bæði fyrr á tímum og í samtímanum. „Við fjöllum um sögu nokkurra einstaklinga sem hafa flutt til Íslands á síðasta áratug. Þeir voru beðnir um að velja muni sem tengjast upprunalandinu og þeim finnst táknrænir fyrir sínar heimaslóðir,“ útskýrir Kristín. Þær stöllur taka fram að fyrst og fremst sé ætlun þeirra að vekja forvitni fólks og áhuga. „Við erum ekki að reyna að svara öllum spurningum sem varða fjölþjóðleika og tengsl milli þjóða heldur vonum að fólk labbi út af sýningunni og vilji vita meira,“ segir Kristín. „Þetta er eins og að fleyta steinum á vatni. Við snertum yfirborðið bara á nokkrum stöðum.“ Sá hluti sýningarinnar sem fjallar um kynþáttahugmyndir og kynþáttafordóma snýst að vissu leyti um barnabókina Negrastrákarnir og áhrif hennar. Bókin var fyrst gefin út árið 1922 í Bandaríkjunum og var þýdd á fjölda tungumála. Velflestir Íslendingar þekkja hana með teikningum Muggs. Kristín segir bókina sýna í raun hversu þverþjóðleg hugmyndin um að mannkynið skiptist í ólíka kynþætti sé. „Kynþáttahugmyndir voru líka í námsbókum þess tíma og öðru prentuðu máli,“ bendir hún á. Kristín er upphafsmaður að sýningunni. „Ég hef alltaf haft áhuga á að miðla niðurstöðum rannsókna á þann hátt að sem flestir geti nýtt sér þær og haft gagn og gaman af. Unnur Dís er ein af þeim sem lengi hafa rannsakað búferlaflutninga fólks milli landa. Því fékk ég hana í lið með mér. Svo drógum við inn í þetta fleiri fræðimenn,“ segir hún og bætir við: „Vonandi stuðlar þetta tiltæki okkar að aukinni umræðu í samfélaginu um þessi mál og sýnir fram á að fólksflutningar eru hluti af eðlilegu mynstri en ekki eitthvað truflandi í samtímanum.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. 11. 2016.
Menning Mest lesið Vítalía og Arnar Grant í kossaflensi Lífið Missti allar tærnar þrjátíu árum eftir að konan skar undan honum Lífið Ási selur íbúðina eftir sambandsslitin Lífið Með milljónir fylgjenda og lætur drauminn rætast í London Lífið Gunna Dís kynnir Eurovision í stað Gísla Marteins Lífið Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni Lífið Fengu sér miðnætursnarl í Skotlandi Lífið Laufey í Vogue ásamt Rihönnu Lífið „Ég fæ það of fljótt, hvað get ég gert?“ Lífið Sest við flygilinn og setur íslenska tónlist í nýjan búning Tónlist Fleiri fréttir Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein „Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“ Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Eliza hlaut heiðursverðlaun Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna Kaflaskil í íslenskri menningarsögu Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun „Óþekka barnið“ í íslenskri myndlist fer nýjar leiðir Íslensk strandmenning í brennidepli á Akranesi Þrífst vel í brjálaðri vinnumenningu í New York Samtal við mömmu sem olli straumhvörfum Sjá meira