Innlent

Eins og að aka undir áhrifum

Birta Björnsdóttir skrifar
Æ algengara er að ökumenn noti farsíma meðan á akstri stendur til að senda skilaboð og vafra á netinu. Sérfræðingur hjá Samgöngustofu segir þróunina grafalvarlega og líkir farsímanotkun undir stýri við ölvunarakstur.

Í nýrri viðhorfskönnun Samgöngustofu á umferðarhegðun almennings kemur meðal annars fram að 77% ökumanna á aldrinum 25-34 ára nota símann sinn til að skrifa skilaboð á meðan á akstri stendur. Ökumenn líta af veginum í að meðaltali 4,6 sekúndur á meðan þeir lesa eða skrifa sms.

„Þó ungir ökumenn séu um margt betri bílstjórar en þegar ég var að útskrifast sem ökumaður skortir þá engu að síður reynslu og þekkingu sem aðrir hafa og þurfa því enn frekar að hafa alla athygli við aksturinn,” segir Einar Magnús Magnússon, sérfræðingur í kynningar- og fræðslumálum hjá Samgöngustofu.

Könnunin hefur verið framkvæmd árlega um nokkurt skeið svo hægt er að gera sér grein fyrir þróuninni í þessum efnum. „Við sjáum gríðarlega aukningu í því að ökumenn eru að nota farsíma undir stýri og á undanförnum árum  er enn meira um það að fólk sé að nota símann til annars en að tala í hann,” segir Einar.

Öll vitum við að farsímanotkun undir stýri er hættuleg. En af hverju höldum við áfram að hringja, senda skilaboð og jafnvel kíkja á Facebook á meðan á akstri stendur? „Mér dettur helst í hug þetta gamla viðhorf, það kemur ekkert fyrir mig,” segir Einar.

Þrátt fyrir mikla aukningu í farsímanotkun við akstur gera ökumenn sér vel grein fyrir hættunni. 98% aðspurðra segja það hættulegt að lesa skilaboð við akstur og 62% ökumanna segjast hafa orðið fyrir truflun við akstur vegna farsímanotkunar annarra bílstjóra. „Viðurlögin við farsímanotkun undir stýri eru svo lág.

Með því er verið að senda þau skilaboð að þetta séu léttvægt vandamál en þetta er grafalvarlegt. Það má færa sterk rök fyrir því að þetta sé eins og að keyra undir áhrifum vímuefna,” segir Einar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×